AstraZeneca er sagt hafa tilkynnt Evrópusambandinu í síðustu viku að sambandinu yrðu afhentir 60% færri skammtar en samningar segja til um á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Ástæðan er sögð framleiðsluvandi í verksmiðjum fyrirtækisins í Evrópu, en sambandið hefur kallað eftir því að því verði afhentir skammtar sem framleiddir eru á Bretlandi.
Evrópusambandið og AstraZeneca munu funda á næstu dögum vegna málsins. Evrópusambandið greindi þó frá því í dag að lyfjaframleiðandinn hafi hætt við fundinn en AstraZeneca hefur síðan þá mótmælt því og sagt að fulltrúar þess muni sitja fundinn.
AstraZeneca er ekki eini bóluefnaframleiðandinn sem hefur þurft að fresta afhendingu bóluefnaskammta, en Pfizer og BioNTech hefur einnig þurft að fresta afhendingu vegna framleiðsluvanda.
Pfizer og BioNTech munu þó leysa framleiðsluvandann í samstarfi við franska lyfjaframleiðandann Sanofi, sem hefur boðið framleiðendunum afnot af verksmiðju þess í Frankfurt. Sanofi mun í sínum húsakynnum framleiða um 125 milljón bóluefnaskammta og hefst framleiðslan þar í júlí.
Stella Kyriakides, heilbrigðismálastjóri ESB, sagði á blaðamannafundi í dag að nauðsynlegt værri að verksmiðjur AstraZeneca á Bretlandi framleiddu bóluefni fyrir sambandið. Það væri hluti af samning lyfjaframleiðandans við Evrópusambandið og þyrfti hann að standa við skuldbindingar sínar.
„Öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins eru sammála því að AstraZeneca verði að standa við gefin loforð samkvæmt okkar samningum,“ sagði hún á fundinum.