„Ég var nánast ekkja í tvær mínútur og 43 sekúndur“ Anton Ingi Leifsson skrifar 21. febrúar 2021 08:01 Það var ansi mikill eldur som kom upp úr bíl Romain. Kamran Jebreili/Getty Þann 29. nóvember 2020 lenti ökuþórinn Romain Grosjean í ansi alvarlegum árekstri sem endaði með því að bíll hans varð alelda. Heima sat kona hans með börnum þeirra og tengdaforeldrum og fylgdist með.
Marion Jollés er eiginkona Romain en í Barein kappakstrinum klessti hann á handrið á 220 kílómetra hraða. Bíllinn varð alelda og Romain var fastur inn í bílnum en á ótrúlegan hátt náðu starfsmenn honum út úr bílnum, til allrar lukku. „Þeir sýndu ekkert. Ég var nánast ekkja í tvær mínútur og 43 sekúndur,“ sagði Marion í samtali við Le Figaro er hún rifjaði upp atvikið skelflilega. Börn þeirra þrjú; Sascha sjö ára, Simon fimm ára og Camille þriggja ára fylgdust einnig með. Hún segir að lýsandinn, Julien Febreaus, hafi hjálpað henni í gegnum þessar tæpu þrjár mínútur. 🗨️ "10 raisons qui auraient pu conduire à sa mort"🗨️ "C'est pas un miracle, c'est une succession de miracles"Bahreïn, 29 novembre 2020. @RGrosjean s'encastre dans le rail avec une puissance inouïe 😱"Retour de flammes", c'est samedi 20 février à 13H50 sur @canalplus 🔜 pic.twitter.com/LDhteyoKfn— Sport Reporter (@Sport__Reporter) February 18, 2021 „Hann var svo rólegur. Ég er ekki viss um að ég hafi sagt honum þetta en hann hjálpaði mér í gegnum þetta. Því meira sem hann talaði, því meira hjálpaði það mér.“ Romain hefur sjálfur sagt eftir atvikið að hann hefði verið búinn að sætta sig við dauðann. „Hausinn á mér hafði sætt mig við þetta. Að nú væri þetta dagurinn sem ég myndi deyja. Hvað brennur fyrst? Verður þetta vont? En svo hugsaði ég um börnin mín og að ég ætlaði ekki að deyja. Ég varð að sjá þau aftur.“ Samningi Romain við Formúlu liðið Haas var ekki framlengdur eftir síðustu leiktíð en hann keyrir nú í IndyCar.
Formúla Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Handbolti Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Fótbolti Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara Handbolti Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Enski boltinn Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Körfubolti Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Fótbolti Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti