Sókn Icelandair Group Úlfar Steindórsson skrifar 4. mars 2021 06:01 Mikið hefur verið rætt og ritað um stöðu Icelandair Group að undanförnu. Slík umræða kemur ekki á óvart enda um að ræða eitt stærsta fyrirtæki landsins sem er í eigu tæplega 15.000 hluthafa, flestir þeirra íslenskir, og framgangur félagsins á næstu misserum mun hafa töluverð áhrif á viðspyrnu íslensks efnahagslífs í kjölfar COVID-19 faraldursins. Það er því eðlilegt að Íslendingar hafi sterkar skoðanir á málefnum Icelandair og fagnaðarefni að málefnaleg umræða fari fram um stöðu félagsins og framtíð eins og við höfum fengið að kynnast að undanförnu. Sú umræða þarf þó að vera málefnaleg, á rökum reist og gefa rétta mynd af bæði fortíð og framtíð félagsins. Upp á síðkastið hefur umræðan þó farið nokkuð út af braut og tel ég því nauðsynlegt sem stjórnarformaður félagsins að leggja nokkur orð í belg. Frá því að ég kom inn í stjórn Icelandair Group árið 2010 hefur félagið gengið í gegnum súrt og sætt. Félagið hafði þá nýlega farið í gegnum mikinn öskustrók eftir eldgos í Eyjafjallajökli þar sem starfsmönnum félagsins tókst með mikilli þrautseigju að færa tengimiðstöð félagsins á mettíma svo hægt væri að halda leiðakerfi þess gangandi. Í framhaldinu var sú landkynning sem hlaust af eldgosinu nýtt til markaðssóknar sem markaði upphafið að gríðarlegum vexti í komu erlendra ferðamanna til Íslands. Vart þarf að fjölyrða um þau jákvæðu áhrif sem aukinn fjöldi ferðamanna hafði á efnahag landsins á árunum eftir efnahagshrunið. Að því leyti fóru hagsmunir Icelandair og Íslands í heild sinni saman. Icelandair er nefnilega íslenskt flugfélag og þannig viljum við hafa það áfram. Yfirgnæfandi meirihluti starfsmanna félagsins eru búsettir á Íslandi og starfsemi félagsins skilar miklu til íslenska þjóðarbúsins í formi skatta og gjalda. Arðgreiðslur félagsins á árunum 2012-2018 skiluðu sér að langmestu leyti til íslenskra hluthafa, sem voru að stórum hluta íslenskir lífeyrissjóðir. Hið íslenska umhverfi sem Icelandair býr við felur í sér ótal tækifæri, m.a. vegna staðsetningar landsins og möguleika til þess að kynna Ísland sem ferðamannastað. Þetta umhverfi felur líka í sér áskoranir þar sem Ísland er fámennt land og heimamarkaðurinn því ekki eins sterkur og hjá öðrum flugfélögum sem reka tengimiðstöð á fjölmennari stöðum. Þá geta ytri aðstæður á borð við sveiflur íslensku krónunnar og hækkun íslenskrar launavísitölu haft áhrif til hækkunar á einingakostnaði Icelandair, líkt og gerðist á árunum 2016-2018. Óraunhæfur samanburður Kostnaðaraðhald og stýring verða ætíð lykilþættir í rekstri vel rekins flugfélags. Fara þarf varlega í samanburð á einingakostnaði lítils flugfélags á borð við Icelandair, og flugfélaga sem hafa tengimiðstöð á fjölmennari svæðum og eru hluti af stórum samsteypum flugfélaga. Innan slíkra samsteypa flugfélaga eru ýmsir kostnaðarliðir miðlægir, t.d. hvað varðar flota- og viðhaldsmál, fjármögnun, upplýsingatækni og innkaup aðfanga og njóta þau hagkvæmni stærðar hvað þá liði varðar. Við samanburð á einingakostnaði Icelandair og slíkra flugfélaga þarf því að taka tillit til þeirra þátta ef markmiðið er að halda áfram að reka sjálfstætt flugfélag sem greiðir góð laun og leggur til samfélagsins á fjölmargan hátt. Verkefnið væri auðvelt ef það fæli einungis í sér lækkun einingakostnaðar. Félagið er og verður íslenskt, og því fylgir að við þurfum að fara okkar leið í að keppa alþjóðlega. Markmiðið er að þjóna farþegum á hagkvæman hátt og á sama tíma skapa virði sem skilar sér til hluthafa, starfsfólks og samfélagsins hér heima. Þá er mikil einföldun að halda því fram að Icelandair sé ávallt verðtaki á markaðnum fyrir tengiflug á milli Evrópu og Norður-Ameríku (VIA markaðurinn). Sérstaða Icelandair á þeim markaði felst í því að geta tengt saman fjölmarga staði í Norður-Ameríku annars vegar og Evrópu hins vegar. Í sumum tilfellum er mikið framboð af beinu flugi milli viðkomandi áfangastaða, t.d. New York og London. Þá tekur verðlagning Icelandair vissulega mið af því að fjölmörg önnur flugfélög bjóða upp á enn betri vöru sem felur í sér styttri ferðatíma. Annað er upp á teningnum ef ekkert beint flug er á milli viðkomandi áfangastaða, t.d. Denver og Bergen. Þá er Icelandair iðulega í þeirri stöðu að bjóða upp á bestu vöruna á markaðinum og er þá ekki verðtaki. Eins og kynnt var ítarlega í fjárfestakynningu í tengslum við hlutafjárútboð félagsins á síðasta ári, er mikilvægt að leiðakerfisstjórnun félagsins taki mið af markaðs- og rekstraraðstæðum hverju sinni og tryggi þannig rétt framboð af flugi á milli áfangastaða Icelandair beggja megin Atlantshafsins. Þegar íslenska krónan er tiltölulega sterk og verðlagning almennt ósjálfbær á VIA markaðnum á félagið ekki að horfa til vaxtar á þeim markaði. Sérstaklega ekki á áfangastöðum þar sem félagið hefur ekkert samkeppnisforskot. Það voru gerð mikil mistök í stýringu leiðarkerfisins hvað þetta varðar á árinu 2018. Þáverandi forstjóri félagsins axlaði ábyrgð á þeim mistökum og við höfum öll lært af þeim. Þrátt fyrir að árin 2018-2020 hafi verið krefjandi fyrir Icelandair tel ég fulla ástæðu til þess að vera bjartsýn fyrir því að félagið geti blásið til sóknar á næstu misserum. Félagið hefur komist í gegnum gríðarlega harða og ósjálfbæra samkeppni á Norður-Atlantshafsmarkaðnum, kyrrsetningu Boeing 737-MAX flugvéla og hefur nú alla burði til að standa sterkum fótum eftir fordæmalausan heimsfaraldur. Breytingar á samkeppnisumhverfinu á Norður-Atlantshafsmarkaðnum mun draga úr þeirri ósjálfbæru samkeppni sem var til staðar á þeim markaði og jafnframt felast ótal tækifæri í því að markaðssetja Ísland fyrir erlenda ferðamenn á næstunni. Öflugir stjórnendur Ég er ekki síst bjartsýnn á framhaldið vegna þeirra einstaklinga í stjórn félagsins sem hafa öll komið ný inn með ferska vinda á síðustu þremur árum. Guðmundur Hafsteinsson hefur fært félaginu mikla þekkingu á stafrænni þróun, nýtingu gagna og áherslu á upplifun viðskiptavinarins og Svafa Grönfeldt hefur unnið þrekvirki við mótun og innleiðingu nýrrar stefnu hjá félaginu. Nina Jonsson og John F. Thomas komu svo fyrir ári síðan ný inn í stjórnina með gríðarlega þekkingu og reynslu af alþjóðlegum flugrekstri. Það hefur reynst nytsamlegt fyrir félagið og mun hafa enn meira vægi á næstu misserum þegar himnarnir opnast og hægt verður að hefja sókn Icelandair að nýju. Það er dýrmætt fyrir Icelandair að hafa fengið svo reynslumikla stjórnarmenn til félagsins. Síðast en ekki síst hef ég óbilandi trú á starfsfólki Icelandair en sá mannauður felur í sér helsta samkeppnisforskot félagsins. Sá hópur er leiddur áfram af sterkum forstjóra með skýra framtíðarsýn og sterku stjórnendateymi þar sem valið fólk er í hverju rúmi. Öll munu þau leggja hart að sér til að tryggja öfluga viðspyrnu félagsins þegar eftirspurn á flugmarkaði tekur við sér að nýju. Á síðustu misserum hafa verið gerðar breytingar innan félagsins sem margir fyrrverandi stjórnendur og fleiri hafa til margra ára talað um að væru nauðsynlegar, en enginn ráðist í fyrr en nú. Góður árangur í hlutabréfaútboði félagsins í fyrra sýndi fram á að fjárfestar hafa mikla trú á stjórnendateyminu enda varð töluverð umframáskrift í útboðinu og hluthafahópurinn fjórfaldaðist. Síðan þá hafa enn fleiri hluthafar, sem hafa trú á félaginu, bæst við hópinn og nálgast fjöldi hluthafa nú 15.000. Hluthafarnir sjá að sóknarfærin eru til staðar fyrir félagið. Það er því ekkert annað í boði fyrir stjórn og stjórnendur en að standa undir þessari ábyrgð og nýta sóknarfærin til hins ítrasta. Höfundur er stjórnarformaður Icelandair Group. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Icelandair Fréttir af flugi Markaðir Mest lesið Takk Sigurður Ingi Helgi Héðinsson Skoðun ,,Mig langar svo bara að geta kennt þessum 25 börnum“ Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Íþróttahreyfingin stefnir í gjaldþrot!! Helgi Sigurður Haraldsson Skoðun Krónan býr sig ekki til sjálf Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Læknaeiðurinn og dánaraðstoð: Hvað þýðir „að valda ekki skaða“? Ingrid Kuhlman Skoðun Mér kvíðir slæm íslenska ungmenna Elín Karlsdóttir Skoðun Verjum mikilvæga starfsemi Ljóssins Guðbjörg Jónsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Sigurdís Haraldsdóttir Skoðun Fjölþátta ógnarstjórn Högni Elfar Gylfason Skoðun Íslensk fátækt er bara kjaftæði Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Fyrrverandi lögreglumaður heyrir enn röddina Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Fjölþátta ógnarstjórn Högni Elfar Gylfason skrifar Skoðun Verjum mikilvæga starfsemi Ljóssins Guðbjörg Jónsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Sigurdís Haraldsdóttir skrifar Skoðun ,,Mig langar svo bara að geta kennt þessum 25 börnum“ Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Mér kvíðir slæm íslenska ungmenna Elín Karlsdóttir skrifar Skoðun Íþróttahreyfingin stefnir í gjaldþrot!! Helgi Sigurður Haraldsson skrifar Skoðun Læknaeiðurinn og dánaraðstoð: Hvað þýðir „að valda ekki skaða“? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Takk Sigurður Ingi Helgi Héðinsson skrifar Skoðun Krónan býr sig ekki til sjálf Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Stöndum saman fyrir íslenskan flugrekstur Bogi Nils Bogason skrifar Skoðun ,,Gallaður" hundur - söluhluturinn hundur - um úrskurð Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Fyrst heimsfaraldur, svo náttúruhamfarir, þá gjaldþrot og nú verkföll! Sigríður Margrét Oddsdóttir skrifar Skoðun Baráttan heldur áfram! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvers virði er líf barns? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvernig hljómar tilboðið einn fyrir þrjá? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Fyrrverandi lögreglumaður heyrir enn röddina Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Bætum lífsgæði þeirra sem lifa með krabbameini Sigríður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Offita á krossgötum Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir,Tryggvi Helgason skrifar Skoðun Fórnir verið færðar fyrir okkur Björn Ólafsson skrifar Skoðun Launaþjófaður – vanmetinn glæpur á vinnumarkaði Kristjana Fenger skrifar Skoðun Áfram veginn í Reykjavík Gísli Garðarsson,Steinunn Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Fjölgun kennara er allra hagur Haraldur Freyr Gíslason skrifar Skoðun Deilt og drottnað í umræðu um leikskólamál Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju hafa Danir það svona óþolandi gott? Björn Teitsson skrifar Skoðun Fjárfestum í framtíðinni Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Togstreita, sveigjanleiki og fjölskyldur Sólveig Rán Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar gjaldtakan? Hildur Hauksdóttir skrifar Skoðun Víðerni verndar og virkjana Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Blóðpeningar vestrænna yfirvalda Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Eigindlegar rannsóknir og umræðan um jafnrétti Stefan C. Hardonk skrifar Skoðun Þegar heilbrigðiskerfið molnar og ráðherrann horfir bara á Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Sjá meira
Verjum mikilvæga starfsemi Ljóssins Guðbjörg Jónsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Sigurdís Haraldsdóttir Skoðun
Skoðun Verjum mikilvæga starfsemi Ljóssins Guðbjörg Jónsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Sigurdís Haraldsdóttir skrifar
Skoðun ,,Gallaður" hundur - söluhluturinn hundur - um úrskurð Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa Árni Stefán Árnason skrifar
Skoðun Fyrst heimsfaraldur, svo náttúruhamfarir, þá gjaldþrot og nú verkföll! Sigríður Margrét Oddsdóttir skrifar
Skoðun Þegar heilbrigðiskerfið molnar og ráðherrann horfir bara á Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar
Verjum mikilvæga starfsemi Ljóssins Guðbjörg Jónsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Sigurdís Haraldsdóttir Skoðun