Innlent

Svalt og rólegt næstu daga

Sylvía Hall skrifar
Hiti á landinu verður 0 til 8 stig yfir daginn og mildast suðvestantil.
Hiti á landinu verður 0 til 8 stig yfir daginn og mildast suðvestantil. Vísir/Vilhelm

Búist er við norðlægri átt í dag, 3 til 10 metrar á sekúndu, og léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Það léttir norðvestanlands með morgninum en verður skýjað að mestu um landið norðaustan- og austanvert og sums staðar dálítil él.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Þar segir að hiti verði á bilinu 0 til 8 stig yfir daginn og mildast suðvestantil, en næturfrost víða um land. Útlit er fyrir sambærilegt veður næstu daga, svalt og rólegt, en öflug hæð yfir Grænlandi heldur lægðum fjarri landinu.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag og þriðjudag:

Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað, hiti 3 til 8 stig yfir daginn. Skýjað norðaustan- og austanlands og sums staðar dálítil él, hiti kringum frostmark.

Á miðvikudag:

Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Lítilsháttar él á norðaustanverðu landinu, og stöku skúrir eða él á Suðurlandi, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 8 stig yfir daginn, mildast suðvestantil.

Á fimmtudag:

Norðan 5-10 og dálítil él um landið norðanvert með hita um eða undir frostmarki. Stöku skúrir eða él sunnan heiða og hiti að 7 stigum yfir daginn.

Á föstudag:

Norðaustan- og austanátt og dálitlar skúrir eða él, en þurrt á Vesturlandi. Hiti 0 til 7 stig að deginum, mildast suðvestanlands.

Á laugardag:

Austlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en skýjað austantil. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×