Innlent

Heiðar­leg at­laga að Ís­lands­metinu í hita í kortunum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vafalítið mun einhver ungur Eskfirðingur fara út með fótboltann sinn í hitanum næstu daga. Vissara að hafa vatnsbrúsann með og bera á sig smá sólarvörn.
Vafalítið mun einhver ungur Eskfirðingur fara út með fótboltann sinn í hitanum næstu daga. Vissara að hafa vatnsbrúsann með og bera á sig smá sólarvörn. Vísir/Vilhelm

Það stefnir í steikjandi hita á Austfjörðum á morgun og gæti hitinn náð 29 stigum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur greinir frá þessu á síðu sinni Bliku og lýsir því sem heiðarleg atlaga að íslenska hitametinu sé í farvatninu.

„Ný „blaðra“ af heitu lofti stefnir nú til okkar úr suðvestri. Loftið er mjög hlýtt á okkar vísu og hlýindin skila sér niður um austan- og norðaustanvert landið. Ýmsir hitabylgjuvísar eru í hárri stöðu á morgun og miðvikudag,“ segir Einar.

Hann skoðar hita í 850 hPa þrýstingi og von á 15-16 gráðum á Austurlandi seinni partinn á morgun. Allra hæstu gildin séu í um 1300 metra hæð. Í ágústhitabylgjunni árið 2004, sem hafi verið ættuð úr suðaustri, hafi hitastigið verið 13-14 gráður í um 1300 metra hæð.

Íbúar og ferðalangar hafa árum saman nánast getað treyst á veðurblíðu á Hallormsstað. Þar gæti hiti nálgast þrjátíu gráður næstu tvo daga.Vísir/Vilhelm

Einar vísar til Íslandsmets í hitastigi á Teigarhorni þann 22. júní árið 1939 þegar talið er að hiti hafi náð 30,5 stigum. Loftmassinn sé svipaður og þá sem gerist aðeins endrum og sinnum. Þá minni staðan nú á ágústdaga árið 2012 þegar hiti mældist 28 stig á Eskifirði.

„En hversu hlýtt verður á morgun og miðvikudag? Ég mundi giska á 28 til 29°C. Spáð er skýjuðu og sólarlitlu, en léttskýjað á miðvikudag. En allir þættir verða að spila saman og að auki að vera ekki fjarri hæstu stöðu sólar,“ segir Einar í færslu sinni á Bliku.

Á meðan Austfirðingar baða sig í sól á massinn á Suðvesturhorninu frekar von á smá úrkomu en sólarglætu, ef marka má spána.Veðurstofa Íslands

Vissulega heiðarleg atlaga að Íslandsmeti hitans, eins og hann orðar það.

„En sjálfur er ég samt þeirrar skoðunar að það takist ekki í þessari góðu tilraun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×