Flugmaður sakaður um morð á tveimur Áströlum í gæsluvarðhald Atli Ísleifsson skrifar 26. nóvember 2021 08:07 Ekkert hefur spurst til þeirra Russell Hill, 74 ára, og Carol Clay, 73 ára, síðan í mars á síðasta ári. Lögregla í Viktoríu Flugmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna morða á eldri manni og eldri konu sem voru á tjaldferðalagi í Ástralíu og hurfu sporlaust fyrir tæpum tveimur árum.
Guardian segir frá því að hinn 55 ára Greg Lynn hafi verið handtekinn síðasta mánudagskvöld þegar lögregla hafði uppi á honum og sótti á lögregluþyrlum á tjaldsvæði í Viktoríu. Lynn er grunaður um að hafa myrt þau Russell Hill, 74 ára, og Carol Clay, 73 ára, en ekkert hefur spurst til þeirra síðan í mars á síðasta ári. Fyrr í dag var Lynn svo úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um morð á hjónunum og munu réttarhöld í málinu fara fram á næsta ári. Ástralskir fjölmiðlar segja Lynn hafa starfað sem flugmaður hjá Jetstar – lággjaldaflugfélagi Qantas – en verið sagt upp fyrr í vikunni eftir að hann var handtekinn. Þau Hill og Clay voru á ferðalagi í Viktoríu-fjallaþjóðgarðinum vorið 2020 og leiddi hvarfið til einnar umfangsmestu leitar í sögu Ástralíu. Ástralskir fjölmiðlar segja þau hafa átt í ástarsambandi. Lögregla telur að þau hafi verið myrt þann 20. mars 2020. Þau höfðu þá notast við talstöð til að hringja til vinar síns fyrr um daginn og sögðust þá vera að koma upp tjaldi í Wonnangatta-dalnum. Tjaldið fannst svo brunnið til ösku daginn eftir. Breska ríkisútvarpið segir frá því að tjaldsvæðið þar sem Lynn var handtekinn sé um 55 kílómetrum frá þeim stað þar sem tjald hjónanna fannst á sínum tíma. Uppfært: Í upprunalegri útgáfu fréttarinnar kom fram að þau Hill og Clay hafi verið hjón, en það er ekki raunin.
Ástralía Erlend sakamál Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira