Skoðun

Eru launa­hækkanir að sliga ís­lenskt at­vinnu­líf?

Rannveig Grétarsdóttir skrifar

Fyrir að verða tveimur árum skall heimsfaraldur Covid-19 á Íslandi. Ferðaþjónusta hér á landi eins og um allan heim hefur gengið í gegnum gríðarlega erfiðleika vegna faraldursins og hefur eitt helsta markmiðið undanfarin misseri verið að halda rekstri fyrirtækjanna á lífi. Viðspyrna ferðaþjónustunnar er hafin en það er enn langt í land að ná fyrri styrk.

Ein af undirstöðum lífskjara í íslensku samfélagi á undanförnum árum hafa verið öflug viðskipti við útlönd. Ferðaþjónusta sem atvinnugrein hefur þar gegnt lykilhlutverki. Fyrir faraldurinn var eftirspurn erlendra ferðamanna eftir vöru og þjónustu hér á landi helsta ástæða lífskjarasóknar í samfélaginu. Ferðaþjónustan skapaði þannig gríðarlegan fjölda starfa um land. Til að svo megi aftur verða þarf að vanda til verka.

Að bera saman epli og appelsínur

Það var því áhugavert að lesa grein eftir forystumann í verkalýðshreyfingunni á dögunum þar sem hann varpaði fram þeirri spurningu hvort launahækkanir væru að sliga íslenskt atvinnulíf. Tók hann þar dæmi af einu stærsta og öflugasta fyrirtæki landsins, með hátt í tvö þúsund starfsmenn, og heimfærði yfir á íslenskt atvinnulíf.

Til að setja hlutina í samhengi þá var um 90% fyrirtækja í ferðaþjónustu árið 2019 með 10 eða færri starfsmenn. Sama ár voru um 9% fyrirtækja með á bilinu 10 – 50 starfsmenn. Restin, eða um 1%, var með fleiri en 50 starfsmenn á launaskrá. Þetta var áður en heimsfaraldur Covid-19 skall á af fullum þunga með öllu því sem tilheyrir.

Skökk samkeppnisstaða

Fyrirtæki í ferðaþjónustu hér á landi eiga í harðri alþjóðlegri samkeppni. Það er oft gott að horfa út fyrir landsteinana þegar kemur að samanburði og því nærtækt að horfa til hinna Norðurlanda. Undanfarinn áratug hefur hlutur launa í verðmætasköpun ferðaþjónustunnar hér landi vaxið meira en rekstarafgangur fyrirtækjanna. Á tímabilinu hefur innlendur launakostnaður hækkað að meðaltali um 6%. Á sama tímabili hefur launakostnaður á hinum Norðurlöndunum hækkað um rúmlega 3%. Þessi þróun veikir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja gangvart kollegum sínum á Norðurlöndunum verulega. Með öðrum orðum er launakostnaður hér á landi að hækka að meðaltali tvöfalt meira en á hinum Norðurlöndunum.

Aðeins um þróun launa hér á landi. Laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað um 12% á síðustu tveimur árum. Á sama tíma er landsframleiðslan enn minni en hún var fyrir heimsfaraldur, þrátt fyrir ágætan vöxt undanfarið hálft ár. Þessi þróun á vinnumarkaði hvorki þjónar hagsmunum launþega né fyrirtækja til lengri tíma.

Horfa ber á stóru myndina

Ferðaþjónusta snýst um fólk - bæði ferðamenn og starfsmenn. Okkur hefur gengið vel að taka á móti erlendum ferðamönnum og helsti ávinningur af vexti í ferðaþjónustu á undanförnum árum hefur sannanlega runnið í vasa starfsmanna.

Framundan eru kjarasamningar á almennum vinnumarkaði. Það skiptir gríðarlegu máli að verkalýðsforystan hafi staðreyndir um stöðu mála á hreinu. Innistæðulausar launahækkanir ýta undir verðbólgu og hækkun vaxta og grafa þannig undan kaupmætti.

Það væri ágætt ef umræddur forystumaður í verkalýðshreyfingunni horfði á jólatréð allt – ekki bara toppinn á trénu og efstu greinarnar!

Höfundur er framkvæmdastjóri Eldingar hvalaskoðunar.




Skoðun

Sjá meira


×