Olíuverð lækkaði töluvert við opnun markaða Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 31. mars 2022 07:07 Joe Biden Bandaríkjaforseti er sagður ætla að tilkynna síðar í dag að Bandaríkin muni ganga á olíubirgðir sínar og þannig auka framboð. EPA Olíuverð lækkaði töluvert við opnun markaða í Asíu í nótt. Þannig lækkaði Brent-hráolían um tæp fimm prósent og West Texas hráolíuvísitalan um tæp sex prósent.
Þetta er rakið til orðróms sem er á þá leið að Joe Biden Bandaríkjaforseti muni í dag kynna áætlun sem miðar að því að Bandaríkjamenn gangi á birgðir sínar og auki þannig framboð á olíu í heiminum um 180 milljónir tunna. Ef þetta gengur eftir þá verður um mestu innspýtingu úr varaolíusjóðnum að ræða síðan í olíukreppunni 1974. Stríðið í Úkraínu hefur hleypt upp olíuverði um allan heim og eru hækkanirnar orðnar að stórpólitísku máli í Bandaríkjunum, en þar verður kosið til þings næsta haust. Búist er við tíðindum frá Biden í þessum málum um klukkan hálf sex að íslenskum tíma. Þá er fyrirhugaður fundur með fulltrúum olíuframleiðsluríkjanna, OPEC og Rússa. En hingað til hafa ríkin ekki viljað auka um of framleiðsluna, þrátt fyrir stríðið og viðskiptaþvinganir gegn Rússum, sem eru önnur stærsta olíuútflutningsþjóð heims.
Bensín og olía Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Joe Biden Mest lesið Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira