Innlent

„Það er verið að ræna þjóðareign“

Bjarki Sigurðsson og Óttar Kolbeinsson Proppé skrifa
Erpur Eyvindarson og Ágúst Bent á mótmælunum í dag.
Erpur Eyvindarson og Ágúst Bent á mótmælunum í dag. Stöð 2

Í dag fóru fram fjölmenn mótmæli á Austurvelli vegna sölu ríkisins á Íslandsbanka. Mun fleiri mættu á þessi mótmæli en hin tvö sem hafa farið fram síðustu laugardaga. Veðurblíðan á landinu gæti hafa spilað inn í fjölgunina. 

„Mótmælendum hefur fjölgað um helming í bæði skiptin. Þetta er í þriðja skiptið sem við hittumst hérna. Og það hefur farið ört vaxandi í hvert skipti. Fjölmennust núna í dag. Fleiri þúsund manns,“ sagði Hallfríður Þórarinsdóttir, einn af skipuleggjendum mótmælanna, í samtali við fréttastofu.

Og það er hugur í mótmælendum. Fundurinn í dag var alls ekki sá síðasti.

„Alls ekki. Ekki eins og þú heyrðir á fólkinu, það vill hittast hérna aftur. Það er gríðarleg óánægja meðal almennings út af þessari bankasölu og bara spillingunni sem hún afhjúpar.“

Hallgerður Þórarinsdóttir, einn af skipuleggjendum mótmælanna.Stöð 2

Almenningur ósáttur með söluna

Almenningur hefur sitt um málið að segja og er mikill meirihluti landsmanna ósáttur með söluna.

„Ég fyrir það fyrsta deili ekki þeim trúarbrögðum að ríkið megi ekki eiga banka. Í öðru lagi að ef að það á að selja slíka eign er lágmark að það verði gert fyrir hámarksvirði. Og þetta ferli stenst bara enga skoðun,“ sagði Hjálmar Theodórsson, einn mótmælenda.

Þrír fluttu ræður við mótmælin en nokkurs konar útihátíðarbragur myndaðist í góða veðrinu þar sem fólk fékk sér kaffi inni í tjaldi og hlýddi jafnvel á tónlistarflutning við upphaf og lok mótmælanna.

„Við erum ekki að kjósa herra Árbæjarskóla“

Rapphljómsveitin XXX Rottweilerhundar voru mættir til að loka mótmælafundinum en meðlimir hennar hafa í gegn um tíðina verið ansi pólitískir í list sinni.

„Þetta er ekki þeirra eign. Það er verið að ræna þjóðareign. Það er sama hvort þetta sé kvótinn eða bankarnir, þetta „concept“ að þjóðnýta tapið og einkavæða gróðann. Það er komið svo fokking nóg af því,“ sagði Erpur Eyvindarson, einn meðlima XXX Rottweilerhunda.

„Mér finnst Bjarni Ben vera sætur og nettur og sjarmerandi en við erum ekki að kjósa herra Árbæjarskóla,“ bætti Ágúst Bent, annar meðlimur hljómsveitarinnar við.


Tengdar fréttir

Fjöl­menn mót­mæli á Austur­velli

Fjölmenn mótmæli fóru fram á Austurvelli í dag vegna sölunnar á Íslandsbanka. Mótmælin hófust klukkan 14.00 en um tvö þúsund manns höfðu boðað komu sína á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×