Fyrrverandi samherji Dagnýjar og Berglindar braut blað í sögunni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. júlí 2022 07:01 Carson Leighann Pickett spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrir Bandaríkin á dögunum. Með því skráði hún sig í sögubækurnar. Omar Vega/Getty Images Carson Pickett skráði sig í sögubækurnar er hún spilaði í 2-0 sigri bandaríska kvennalandsliðsins í fótbolta á Kólumbíu.
Hin 28 ára gamla Pickett fæddist með vanþróaða útlimi (e. limb difference). Á hana vantar vinstri framhandlegginn og er hún fyrsti leikmaður sögunnar til að spila fyrir bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta sem er ekki með fullmótaða útlimi. View this post on Instagram A post shared by U.S. Soccer WNT (@uswnt) Pickett hefur ekki látið þetta stöðva sig en hún gerði garðinn frægan með feykilega öfluga liði Florida State-háskólans. Þar skoraði hún meðal annars sigurmarkið í úrslitaleiknum 2014 en þá léku íslensku landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir með liðinu. Carson hefur spilað sem atvinnumaður síðan hún útskrifaðist úr Florida State. Ásamt því að spila með Seattle Reign, Orlando Pride og North Carolina Courage í Bandaríkjunum hefur hún spilað með Brisbane Roar í Ástralíu og Apollon á Kýpur. Carson stóð vaktina í vörn Bandaríkjanna er liðið lagði Kólumbíu og hrósaði þjálfari liðsins henni í hástert í leikslok. Hver veit nema við sjáum Carson spila fleiri leiki í búningi bandaríska landsliðsins í framtíðinni.
Fótbolti Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Fleiri fréttir „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Sjá meira