Kraftaverkið að engu en bakdyrnar standa opnar Sindri Sverrisson skrifar 6. september 2022 23:30 Mögnuð barátta og eljusemi íslenska liðsins varð á endanum til einskis og vonbrigðin leyndu sér ekki hjá fyrirliðanum Söru Björk Gunnarsdóttur. Getty/Patrick Goosen Himnarnir grétu í Utrecht í kvöld, með tilheyrandi þrumum og eldingum, og tárin féllu sömuleiðis niður íslenska vanga eftir að draumurinn um að stelpurnar okkar kæmust á HM í fyrsta sinn varð ekki að veruleika.
Það er ekkert óeðlilegt við að tapa gegn Hollandi á útivelli, einu besta landsliði heims, fyrir framan hátt í tuttugu þúsund appelsínugula stuðningsmenn sem sköpuðu frábæra stemningu. Tapið var hins vegar eins sárt og það getur orðið því eftir að íslenska fleyið hafði stolt staðið af sér storm og stórsjó, þannig að með hreinum ólíkindum var, náði Holland að skora eitt „ógeðslegt“ mark, eins og Sveindís Jane Jónsdóttir orðaði það, í uppbótartíma. Áður en að Hollendingar komu loksins boltanum í netið var maður farinn að trúa á kraftaverk. Að eldingu gæti lostið sjö sinnum niður á sama stað, sama kvöld. Næstum því inn á HM út á baráttu og grimmd Það var nefnilega algjört kraftaverk að Vivianne Miedema og vinkonur hennar næðu ekki að skora nokkur mörk í fyrri hálfleik. Íslenska liðið virtist ætla að sýna það að hægt væri að komast á HM bara á hreinræktaðri íslenskri baráttu og grimmd, því þessir eiginleikar ásamt umtalsverðri heppni og heimsklassa varnarframmistöðu nokkurra leikmanna, voru það eina sem kom í veg fyrir að rosalegir yfirburðir Hollendinga skiluðu mörkum. Vinstri vængur íslenska liðsins réði gjörsamlega ekki neitt við að verjast Hollandi í fyrri hálfleiknum og heimakonur fengu endalaust af góðum fyrirgjafastöðum til að mata sína stórkostlegu sóknarmenn. Sú breyting frá síðasta leik að setja Svövu Rós Guðmundsdóttur inn í stað Amöndu Andradóttur, sem kom ekkert við sögu í gær, heppnaðist ekki. Einhvern veginn náði Ísland þó, með Glódísi Perlu Viggósdóttur og Söndru Sigurðardóttur fremstar í flokki, að halda hreinu fram að hléi. Marksúlur íslenska marksins skulfu samt og Guðrún Árnadóttir náði að bjarga á marklínu eitt sinn. Sandra Sigurðardóttir átti algjörlega stórkostlegan leik og var niðurbrotin í lokin því hún var staðráðin í að vinna sig inn á HM í kvöld.Getty Málin löguðust til muna fyrir Ísland í seinni hálfleiknum og eftir því sem leið á hann fylltist trú allra á að Ísland kæmist á HM. Danielle van de Donk, sem var svo erfið viðureignar í fyrri hálfleiknum, fór fljótlega út af og við það minnkaði ógnin af hollenska liðinu. Sveindís fékk gullið tækifæri Og Ísland fékk líka besta færi leiksins þegar Gunnhildur Yrsa gaf fyrir á Sveindísi Jane Jónsdóttur en henni brást bogalistin. En þegar vel var liðið á uppbótartíma og lokaflautið lá í loftinu endaði fyrirgjöf Hollendinga einhvern veginn í netinu og allt varð gjörsamlega vitlaust á vellinum í appelsínugulri alsælu, á meðan að vonbrigðin voru algjör hjá Íslandi. Það verður að ítreka að Sandra og miðverðir íslenska liðsins geta verið afar stolt af sínu, þó að Glódís kenni sjálfri sér um markið, sem er ósanngjarnt mat þó að líklega hafi það verið sjálfsmark. Glódís Perla Viggósdóttir reyndi að verjast Stefanie van der Gragt í skallaeinvígi en af henni fór boltinn í netið þegar níutíu sekúndur voru til leiksloka. Glódís hafði átt stjörnuleik fram að því.Getty/Rico Brouwer Sandra átti raunar ógleymanlega frammistöðu í leik sem allir, og hún þar á meðal, vilja núna gleyma. En það má bara ekki gleymast hversu ótrúlega góð hún var í leiknum og hvernig hún er gjörsamlega búin að fara fram úr öllum væntingum með frammistöðu sinni, bæði á EM og í öðrum leikjum, sérstaklega í kvöld, eftir öll þessi ár sem hún þurfti að vera á bekknum í landsleikjum. Hún á svo sannarlega skilið að spila á HM. Sárið opið en vonin lifir Það vill enginn hugsa um eitthvað umspil núna. Sárið er enn opið og það þarf tíma til að jafna sig á vonbrigðum eins og í kvöld, sjálfsagt mestu vonbrigðum sem sumir leikmanna íslenska liðsins hafa upplifað. En í umspilinu bíður Íslands viðráðanlegri andstæðingur en Holland, vonin um að komast á HM er enn mikil, og ef heppnin verður með Íslandi á föstudaginn varðandi það að fá heimaleik í umspilinu er ekki vafi á því að stelpurnar okkar gætu enn flogið á HM næsta sumar.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Fótbolti Landslið kvenna í fótbolta Tengdar fréttir „Ætla að fá að líða smá illa“ „Erfitt að segja, bara frekar tómlegt og skrítið, grátlegt,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir aðspurð hvaða tilfinningar bærust henni í brjósti eftir súrt tap Íslands í Hollandi í kvöld. Með jafntefli hefði Ísland tryggt sér farseðilinn á HM sumarið 2023 en sigurmarkið kom þegar aðeins 90 sekúndur voru til leiksloka. 6. september 2022 23:00 „Við erum ekkert hættar, við ætlum okkur að fara á HM“ Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var að vonum svekkt eftir 1-0 tap Íslands fyrir Hollandi í undankeppni HM 2023 í kvöld. Ísland var 90 sekúndum frá jafntefli sem hefði tryggt liðinu sæti á HM. 6. september 2022 22:31 Svona er umspilið sem Ísland fer í Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er enn mögulega aðeins einum leik frá því að komast á HM í Eyjaálfu næsta sumar. Liðið leikur í umspili eftir tapið sárgrætilega gegn Hollandi í Utrecht í kvöld. 6. september 2022 22:15 Miedema: „Talaði við Dagnýju og mér finnst þær hafa gæðin“ Vivianne Miedema, framherji hollenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, var eðlilega í skýjunum eftir að liðið tryggði sér sæti á HM á kostnað íslenska liðsins í kvöld og segir að sigurinn hafi verið verðskuldaður. 6. september 2022 22:05 „Ég er bara í áfalli“ „Við ætlum á HM,“ segir Sveindís Jane Jónsdóttir eftir grátlegt 1-0 tap Íslands fyrir Hollandi í undankeppni HM 2023 í kvöld. Holland skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og sendi Ísland í umspil. 6. september 2022 21:56 Twitter eftir grátlegt tap í Hollandi: „Maður er bugaður eftir þennan leik. Takk fyrir stelpur“ Ísland tapaði með minnsta mun í Hollandi í kvöld er liðin mættust í lokaumferð undankeppni HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. Jafntefli hefði dugað Íslandi til að komast beint á HM en liðið fer nú í umspil sem fram fer í október. 6. september 2022 21:00 Einkunnir Íslands: Sandra maður leiksins Ísland tapaði með afar svekkjandi hætti, 1-0 fyrir Hollandi í undankeppni HM ytra. Sigurmark Hollands kom í uppbótartíma og þýðir að Ísland fer ekki beint á HM heldur í umspil. 6. september 2022 20:50 Umfjöllun: Holland-Ísland 1-0 | Stelpurnar okkar 90 sekúndum frá því að tryggja sér sæti á HM Ísland tapaði með minnsta mun í Hollandi í kvöld er liðin mættust í lokaumferð undankeppni HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. Jafntefli hefði dugað Íslandi til að komast beint á HM en liðið fer nú í umspil sem fram fer í október. 6. september 2022 20:45 Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Sjá meira
„Ætla að fá að líða smá illa“ „Erfitt að segja, bara frekar tómlegt og skrítið, grátlegt,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir aðspurð hvaða tilfinningar bærust henni í brjósti eftir súrt tap Íslands í Hollandi í kvöld. Með jafntefli hefði Ísland tryggt sér farseðilinn á HM sumarið 2023 en sigurmarkið kom þegar aðeins 90 sekúndur voru til leiksloka. 6. september 2022 23:00
„Við erum ekkert hættar, við ætlum okkur að fara á HM“ Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var að vonum svekkt eftir 1-0 tap Íslands fyrir Hollandi í undankeppni HM 2023 í kvöld. Ísland var 90 sekúndum frá jafntefli sem hefði tryggt liðinu sæti á HM. 6. september 2022 22:31
Svona er umspilið sem Ísland fer í Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er enn mögulega aðeins einum leik frá því að komast á HM í Eyjaálfu næsta sumar. Liðið leikur í umspili eftir tapið sárgrætilega gegn Hollandi í Utrecht í kvöld. 6. september 2022 22:15
Miedema: „Talaði við Dagnýju og mér finnst þær hafa gæðin“ Vivianne Miedema, framherji hollenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, var eðlilega í skýjunum eftir að liðið tryggði sér sæti á HM á kostnað íslenska liðsins í kvöld og segir að sigurinn hafi verið verðskuldaður. 6. september 2022 22:05
„Ég er bara í áfalli“ „Við ætlum á HM,“ segir Sveindís Jane Jónsdóttir eftir grátlegt 1-0 tap Íslands fyrir Hollandi í undankeppni HM 2023 í kvöld. Holland skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og sendi Ísland í umspil. 6. september 2022 21:56
Twitter eftir grátlegt tap í Hollandi: „Maður er bugaður eftir þennan leik. Takk fyrir stelpur“ Ísland tapaði með minnsta mun í Hollandi í kvöld er liðin mættust í lokaumferð undankeppni HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. Jafntefli hefði dugað Íslandi til að komast beint á HM en liðið fer nú í umspil sem fram fer í október. 6. september 2022 21:00
Einkunnir Íslands: Sandra maður leiksins Ísland tapaði með afar svekkjandi hætti, 1-0 fyrir Hollandi í undankeppni HM ytra. Sigurmark Hollands kom í uppbótartíma og þýðir að Ísland fer ekki beint á HM heldur í umspil. 6. september 2022 20:50
Umfjöllun: Holland-Ísland 1-0 | Stelpurnar okkar 90 sekúndum frá því að tryggja sér sæti á HM Ísland tapaði með minnsta mun í Hollandi í kvöld er liðin mættust í lokaumferð undankeppni HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. Jafntefli hefði dugað Íslandi til að komast beint á HM en liðið fer nú í umspil sem fram fer í október. 6. september 2022 20:45