Skoðun

Brjótum glæpahringina upp

Atli Bollason skrifar

Aldrei hafa fleiri sætt gæsluvarðhaldi og nú. Fangelsismálastjóri segir að álagið sé orðið það mikið að erfitt sé að tryggja öryggi starfsfólks. Flest sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um brot á fíkniefnalögum. Samtímis reynir dómsmálaráðherra að koma í gegn frumvarpi um forvirkar rannsóknarheimildir sem á skv. greinargerð að miða að því að koma í veg fyrir afbrot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi, bæði innanlands og á milli landa.

Það eru miklu einfaldari leiðir til ef ætlunin er raunverulega að brjóta á bak aftur skipulagða glæpastarfsemi. Skipulagðir brotahópar byggja afkomu sína að langmestu leyti á sölu vímuefna. Dyggustu stuðningsmenn bannstefnunnar í vímuefnamálum eru því glæpahringir. Slíkir hringir starfa raunverulega í skjóli Alþingis því ef efnin sem þeir selja væru gerð lögleg væri tekjugrundvöllur starfseminnar brostinn og hóparnir þar með úr sögunni hérlendis. Um þetta hef ég nýlega ritað í lengra og ítarlegra máli. Það myndi líka grynnka verulega í fangelsum landsins og kúguð burðardýr í vonlausri aðstöðu gætu loks um frjálst höfuð strokið.

Með lögleiðingu efnanna yrði til nýr skattstofn, einhvers staðar í kringum 70 milljarðar á ári ef mið er tekið af götuverðmæti þeirra efna sem Íslendingar notuðu á árunum 2017-2020, sem ríkið gæti ráðstafað að vild til heilbrigðismála, menningarmála, félagsmála eða til að greiða niður skuldir ríkisins. Dómsmálaráðherra gæti bætt um betur, tekið höndum saman við vinnumarkaðsráðherra, efnahagsráðherra og nýsköpunarráðherra og hafið framleiðslu á efnunum hérlendis. Þar yrðu til fjöldamörg störf við rannsóknir, framleiðslu, drefingu og sölu þeirra. Með því sama yrðu óhrein vímuefni úr sögunni og öryggi notenda–bæði fíkla og hinna sem eru miklu fleiri og nota efnin vandræðalaust–því stórbætt. Allt yrði þetta að sjálfsögu undir handleiðslu heilbrigðisráðherra, enda eru sum efnanna á bannlista stjórnvalda næstum því jafnhættuleg og áfengi og því mikilvægt að taka tillit til lýðheilsusjónarmiða og tryggja aðgang að niðurgreiddum meðferðarúrræðum fyrir þau sem þess þurfa.

Að síðustu hefur þessi leið þann kost umfram svokallaðar afbrotavarnir dómsmálaráðherra að hún eykur á frelsi fólks fremur en að draga úr því. Meira frelsi, meiri tekjur og endalok skipulagðrar glæpastarfsemi á Íslandi - allt með einu pennastriki. Já takk!

Höfundur er áhugamaður um nýja vímuefnastefnu.




Skoðun

Sjá meira


×