Segir eiginmanninn ekki hafa komið hreint fram vegna hlutabréfaviðskipta Atli Ísleifsson skrifar 15. september 2023 09:08 Hjónin Sindre Finnes og Erna Solberg, þáverandi forsætisráðherra, árið 2018. Getty Erna Solberg, leiðtogi norska Hægriflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir að eiginmaður sinn, Sindre Finnes, hafi ekki komið hreint fram við sig eða aðra vegna hlutabréfaviðskipta hans í forsætisráðherratíð hennar.
Solberg sagði í morgun að rannsókn hafi leitt í ljós að hún hafi reynst vera vanhæf í fjölda mála sem hún hafi komið að sem forsætisráðherra vegna hlutabréfabrasks eiginmannsins sem hún hafi ekki vitað af. Í ljós hafi komið að hann hafi hagnast um 1,8 milljónir norskra króna, um 23 milljónir króna, á þeim tíma sem hún var forsætisráðherra, en alls hafi hlutabréfafærslur Finnes verið 3.650 talsins. „Þau hafa nú fengið aðgang að hlutabréfaviðskiptum Sindre þau ár sem ég var forsætisráherra. Það geta allir séð að þau voru umfangsmikil. Sindre hefur átt í mun meiri viðskiptum en hann greindi mér frá eða forsætisráðuneytinu,“ sagði Solberg á fréttamannafundinum í morgun. Solberg, sem var forsætisráðherra Noregs á árunum 2013 til 2021, segir ljóst að eiginmaðurinn hafi ekki verið fullkomlega heiðarlegur gagnvart sér. „Trúnaðarbrot eru alltaf erfið, sérstaklega innan fjölskyldu og hjónabands. Það særir mig að þurfa að vera jafnhörð í garð Sindre og ég er í dag,“ sagði Solberg á meðan hún reyndi að halda aftur af tárunum. Solberg segir ljóst að Sindre hafi staðið í hlutabréfaviðskiptunum þó að honum hafi verið fullkunnugt um að hann ætti ekki að gera það og af hverju hann ætti ekki að gera það.
Noregur Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira