„Þú hefur sagt hinn raunverulega sannleika,“ skrifaði Musk undir færsluna. Hann bölsótaðist svo út í samtökin Anti Defamation League eða ADL en það eru samtök sem stofnuð voru til að berjast gegn gyðingahatri og berjast nú gegn alls kyns hatursorðræðu.
Musk hefur sakað forsvarsmenn samtakanna um að þrýsta á forsvarsmenn fyrirtækja um að hætta að auglýsa á X eftir að hann keypti miðilinn. Hann hótaði fyrr á árinu að höfða mál gegn samtökunum eftir að birt var skýrsla frá þeim um að hatursorðræða hefði aukist á X, eftir að hann tók við.
Musk keypti fyrirtækið fyrir rétt rúmu ári á 44 milljarða dala, eða um sex billjónir króna. Á þeim tíma hefur Musk sagt upp meirihluta starfsmanna, dregið verulega úr ritstjórn og hleypt fólki sem hafði verið bannað á Twitter aftur þar inn. Sérfræðingar segja hatursorðræðu hafa aukist til muna á undanförnu ári en Musk hefur gert erfiðara fyrir rannsakendur að fylgjast með slíkri orðræðu.
Sjá einnig: Hóta samtökum gegn hatursorðræðu lögsókn
Þetta hefur leitt til þess að auglýsingatekjur fyrirtækisins hafa dregist verulega saman þar sem auglýsendur hafa dregið úr umsvifum sínum á samfélagsmiðlinum. Tekjur X hafa því dregist verulega saman.
Tekjumissir X vegna ákvörðunar forsvarsmanna IBM er sagður vera um ein milljón dala.
Sjá einnig: Virði X helmingi minna á einu ári
Musk skrifaði á miðvikudaginn að ADL réðist með ósanngjörnum hætti á meirihluta „Vestursins“, þrátt fyrir að þessi meirihluti styddi gyðinga og Ísraelsríki. Hann sagði þetta vera vegna þess að ADL gæti ekki „gagnrýnt minnihlutahópana sem eru þeirra helsta ógn“.
Seinna meir, þegar hann var gagnrýndur fyrir að setja alla gyðinga undir einn hatt, sagði Musk það sanngjarna gagnrýni og að ummæli hans ættu ekki við þá alla. Þeir væru þó fleiri en eingöngu meðlimir ADL.
Bannvæn samsæriskenning
Áðurnefnd færsla sem Musk tjáði sig við hefur verið sett í samhengi við langlífa samsæriskenningu um að auðugir gyðingar séu að reyna að nota innflytjendur til að velta hvíta manninum úr sessi, eins og fram kemur í frétt New York Times.
Til dæmis má benda á fræg mótmæli hvítra þjóðernissinna í Charlottesville í Bandaríkjunum árið 2017. Þá gengu þeir um götur með kyndla og kölluðu slagorð eins og „gyðingar munu ekki velta okkur úr sessi“ og „hvít líf skipta máli“.
Sjá einnig: Hvítir þjóðernissinnar fjölmenntu í göngu
Þessari samsæriskenningu hefur verið lýst af réttaindasamtökum gyðinga sem þeirri banvænustu í nútímasögu Bandaríkjanna.
Elon Musk s agreement with a user promoting elements of the Great Replacement theory isn t the "truth."
— American Jewish Committee (@AJCGlobal) November 16, 2023
It is the deadliest antisemitic conspiracy theory in modern U.S. history and motivated the Pittsburgh synagogue shooting.
To amplify it on @X is incredibly dangerous. pic.twitter.com/2u5nQdEdes
Gyðingahatur er sagt hafa aukist verulega í Bandaríkjunum samhliða mannskæðu stríði Ísraelsríkis gegn Hamas-samtökunum en þúsundir óbreyttra íbúa Gasastrandarinnar hafa fallið í árásum Ísraela. Í frétt Wall Street Journal segir að bæði bandarískir gyðingar og bandarískir múslimar segist verða fyrir meira áreiti.
Í frétt NYT segir að starfsmenn X hafi fengið símtöl frá auglýsendum í gær. Blaðamaður NYT, sem skoðað hefur innri samskipti starfsmanna X, segir marga starfsmenn hafa velt vöngum yfir því í gær hvernig þeir ættu að svara áhyggjum auglýsenda.
Margir væru að hringja, bæði vegna ummæla Musks og vegna greinar frá samtökum sem heita Media Matters um að auglýsingar stórra fyrirtækja birtist við hlið færslna sem innihalda gyðingahatur og nasistaorðræðu.
Linda Yaccarino, forstjóri X, birti færslu á samfélagsmiðlinum í gær þar sem hún sagði mismunun ekki eiga heima á X. Hætta ætt öllu slíku og sagði hún að línurnar á X væru skýrar. Barist væri gegn gyðingahatri og mismunum. Enginn staður væri réttur fyrir slíkt og það væri ljótt og rangt. „punktur,“ skrifaði Yaccarino.
X s point of view has always been very clear that discrimination by everyone should STOP across the board -- I think that's something we can and should all agree on. When it comes to this platform -- X has also been extremely clear about our efforts to combat antisemitism and
— Linda Yaccarino (@lindayaX) November 16, 2023