Hafa uppgötvað nýjan flokk sýklalyfja gegn fjölónæmum bakteríum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. janúar 2024 08:20 Miklar vonir eru bundnar við nýja lyfið. Getty Vísindamenn hafa uppgötvað nýjan flokk sýklalyfja sem virðast geta unnið á einni af þeim þremur fjölónæmu bakteríutegundum sem eru taldar ógna mannkyninu hvað mest.
Lyfið Zosurabalpin vann á afar ónæmum undirgerðum Crab (Carbapenem-resistant Acinetobacter baumannii) í músum, sem þjáðust af lungnabólgu og sýklasótt. Crab er meðal þriggja bakteríutegunda sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir einna mikilvægast að rannsaka og þróa ný lyf gegn en hinar eru umhverfisbakteríur (Pseudomonas aeruginosa) og þarmabakteríur (Enterobacteriaceae). Andrew Edwards, sérfræðingur í sameindalíffræði við Imperial College í Lundúnum, segir Crab oft finnast á sjúkrahúsum og ógna sjúklingum, ekki síst þeim sem reiða sig á öndunarvélar. Bakterían sé ekki „aggressív“ en erfið viðureignar þar sem hún sé ónæm fyrir fjölmörgum sýklalyfjum. Erfiðastar viðureignar eru bakteríur með nokkurs konar varnarhjúp, sem er meðal annars gerður úr fitufjölsykru (LPS), sem gerir bakteríunum bæði kleift að komast af í óhagfelldu umhverfi og forðast atlögur ónæmiskerfisins. Engin ný sýklalyf gegn umræddum bakteríum hafa komið á markað í 50 ár. Zosurabalpin er sagt virka þannig að það hindrar fitufjölsykruna frá því að berast í varnarhjúp bakteríunnar, sem gerir það að verkum að hún deyr. Uppgötvunin er ekki sögð munu uppræta sýklalyfjaónæmi en mögulega leggja grunn að þróun nýrra lyfja gegn fjölónæmum bakteríum. Guardian fjallar ítarlega um málið.
Heilbrigðismál Lyf Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira