Innlent

Svaka­legt að sjá fylgis­aukningu Höllu Hrundar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Baldur Héðinsson er stærðfræðingur og sérfræðingur í skoðanakönnunum.
Baldur Héðinsson er stærðfræðingur og sérfræðingur í skoðanakönnunum. Vísir

Baldur Héðinsson, stærðfræðingur og sérfræðingur í skoðanakönnunum, segir frambjóðendurna fjóra sem mælast með mest fylgi í könnunum alla eiga séns á því að komast á Bessastaði í sumar. Margt geti breyst á næstu fimm vikum.  

Í nýjustu könnunum mælast forsetaframbjóðendurnir Katrín Jakobsdóttir, Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Jón Gnarr öll með yfir fimmtán prósent fylgi. Í nýjustu könnun Maskínu er Halla Hrund með 26,2 prósent fylgi, Katrín með 25,4 prósent fylgi, Baldur með 21,2 prósent fylgi og Jón með 15,2 prósent fylgi. Aðrir mælast allir með undir fimm prósent fylgi. 

Mest spennandi forsetakosningar í áratugi

Baldur Héðinsson ræddi kosningarnar í kvöldfréttum Stöðvar 2 og bendir hann á að um níutíu prósent fylgisins sé að safnast á þessa fjóra frambjóðendur, þrátt fyrir að þrettán manns séu í framboði. 

„Við erum núna með nánast jafntefli hjá efstu þremur og Jón Gnarr er ekkert langt á eftir. Á sama tíma árið 2016, þá var Guðni með yfir fimmtíu prósent fylgi og hann var alveg skýrt í forystu. Nú er þetta alveg hnífjafnt þannig ég myndi segja að þetta séu mest spennandi forsetakosningar í áratugi,“ segir Baldur. 

Klippa: Fjögur efstu eigi öll hiklaust séns

Halla í sókn, aðrir í vörn

Hann segir fylgisaukningu Höllu Hrundar vera svakalega en hún fer úr fimm prósentum og upp í yfir 25 prósent fylgi á örfáum vikum. 

„Þetta er að koma fram í öllum könnunum og það er spurning hversu hátt hún fer. Ef maður notar íþróttamál þá er hún í sókn og hinir þrír í vörn eins og er,“ segir Baldur. 

Skoðanakannanir góðar fyrir kjósendur

Hann segir skoðanakannanir af því góða og að þær séu einungis upplýsingar fyrir kjósendur um hver staðan er. Svo sé það þeirra að ákveða hverjum þeir vilja veita atkvæði sitt. 

„Ef við værum ekki með skoðanakannanir, þá væri bara vettvangur fyrir aðra hluti að koma inn í staðinn, eins og auglýsingar og herferðir á samfélagsmiðlum. Þessar kannanir eru vel gerðar og ég held þær hjálpi okkur að stíga út úr okkar hóp og fá góða mynd af því hver staðan er. Ég held að þessar upplýsingar séu góðar fyrir kjósendur,“ segir Baldur. 

Allt getur gerst

Fimm vikur eru til kosninga og bendir Baldur á að það geti margt breyst á þeim tíma. 

„Eins og árið 2016 þegar Halla Tómasdóttir sá mikla fylgisaukningu í vikunum í aðdraganda kosninga. Við getum séð miklar breytingar á þessu og aðra frambjóðendur koma óvænt inn. Þetta verður allavegana rosa spennandi,“ segir Baldur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×