Refsivert að ganga í hjónaband með barni í Síerra Leóne Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 25. júní 2024 18:04 Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna Barnaheilla, ásamt stúlkum í bænum Kasseh í Síerra Leóne. Barnaheill Barnahjónabönd voru nýlega gerð refsiverð í Sierra Leone. Markar þetta mikil tímamót þar sem í landinu er ein hæsta tíðni barnahjónabanda í heiminum. Fjörutíu prósent stúlkna undir átján ára aldri hafa verið neyddar í hjónaband í landinu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynnngu frá Barnaheill – Save the Children. Samtökin og stúlkur í Síerra Leóne hafa staðið fyrir herferð til að þrýsta á stjórnvöld að lögfesta bann við barnahjónaböndum og nú hefur frumvarp þess efnis verið samþykkt. Með samþykkt á frumvarpinu er refsivert fyrir fullorðinn einstakling að ganga í hjónaband eða vera í sambandi með barni undir 18 ára aldri. Með nýjum lögum opnast tækifæri fyrir stúlkur til að mennta sig. Einnig munu ný lög leiða til þess að tíðni stúlkna sem eignast ungar barn lækki, en um þriðjungur stúlkna þar í landi verða barnshafandi fyrir 18 ára aldur, að því er segir í tilkynningunni. Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla og Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna hjá samtökunum eru staddar í Síerra Leóne, þar sem frumvarpinu er fagnað. „Þetta er mikill sigur fyrir tæpar fjórar milljónir barna í Síerra Leóne. Barnaheill – Save the Children á Íslandi fagna nýjum lögum í landinu en við vinnum í tíu þorpum í Pujehun héraði í Síerra Leóne að vernd gegn ofbeldi á börnum, sér í lagi kynbundnu- og kynferðisofbeldi,“ segir Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna hjá Barnaheillum.
Síerra Leóne Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira