Innlent

Al­gjör undan­tekning að mörg skot þurfi til að fella dýrið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stóra hreindýraveiðitímabinu lauk í september en tuttugu daga gluggi er í nóvember til að fella 24 hreinkýr.
Stóra hreindýraveiðitímabinu lauk í september en tuttugu daga gluggi er í nóvember til að fella 24 hreinkýr. Vísir/vilhelm

Yfirmaður hjá Umhverfisstofnun segir um undantekningartilvik að ræða þegar skjóta þurfti fleiri en einu skoti til að fella hreinkú á Suðausturlandi í gær. Mestu máli hafi skipt að tekist hafi að fella dýrið en það ekki sloppið sært í burtu.

Sæmundur Jón Jónsson, frístundabóndi á Þingskálum í sveitarfélaginu Hornafirði, lýsti því í gær hvernig hann hefði fylgst með fimmtán mínútna stríði þriggja veiðimanna við hreindýr „í bakgarðinum“ hjá sér. Hann setti stórt spurningamerki við veiðarnar en hann hefði heyrt í það minnsta sex byssuskot.

Nóvemberveiðar á hreinkúm standa yfir á tveimur syðstu veiðisvæðunum, svæði 8 og 9, þar sem leyfi er fyrir 24 kúm fyrstu tuttugu dagana í nóvember. Ein af þessum kúm var felld í námunda við heimili Sæmundar í gær.

Bjarni Jónasson, teymisstjóri í teymi lífríkis og veiðistjórnunar hjá Umhverfisstofnun, segir mál á borð við þetta eiginlega aldrei koma inn á borð stofnunarinnar.

„Sem betur fer er ekki oft sem svona gerist,“ segir Bjarni. Starfsmenn stofnunarinnar hafi farið strax í að leita upplýsinga, hafa samband við tilkynnanda sem hafi ekki svarað í símann og svo rætt við leiðsögumann.

„Það er ekkert sem bendir til þess að nokkuð ólöglegt hafi verið gangi. Að þeir hafi verið of nálægt húsum eða annað slíkt,“ segir Bjarni.

„Það virðist vera að eitthvað hafi farið úrskeiðis. Fyrsta skotið hafi ekki verið nógu gott. Þá virðist dýrið hafa farið af stað. Ef þau hlaupa af stað getur eðli málsins samkvæmt verið erfitt að fella dýrið,“ segir Bjarni.

Ekki liggi fyrir upplýsingar um hvort tvö skot eða fleiri hafi farið í dýrið.

Bjarni segir atvikið óheppilegt en sé sem betur fer algjör undantekning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×