Fótbolti

At­kvæði Ís­lands var með efstu menn í réttri röð í Ballon d'Or kosningunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rodri fékk Gullhnöttinn að þessu sinni og fulltrúi Íslands í kjörinu var sammála því. Hér mætir Rodri á hófið.
Rodri fékk Gullhnöttinn að þessu sinni og fulltrúi Íslands í kjörinu var sammála því. Hér mætir Rodri á hófið. Getty/Stephane Cardinale

Spænski knattspyrnumaðurinn Rodri vann Gullhnöttinn í ár með því að fá aðeins 41 stigi meira en Vinicius Junior. France Football hefur loksins gefið upp niðurstöður Ballon d'Or kjörsins.

Það var mjög lítill munur á efstu mönnum sem kemur ekki á óvart. Rodri fékk 1170 stig en Vinicius 1129 stig.

Munurinn hefur áður verið lítill en nú var tekið upp nýtt stigakerfi. Að þessu sinni fékk leikmaður fimmtán stig fyrir fyrsta sæti á lista fjölmiðlamanna frá hundrað efstu þjóðum á FIFA-listanum. Næsti maður fékk síðan 12 stig, svo 10, 8, 7, 5, 4, 3, 2 og 1. 

99 af 100 með kosningarrétt kusu en sýrlenskur blaðamaður skilaði ekki atkvæði sínu.

Níu leikmenn fengu atkvæði í efsta sætið en auk Rodri og Vinicius Junior voru það Jude Bellingham (5 atkvæði), Dani Carvajal (4), Toni Kroos (2), Kylian Mbappé, Erling Haaland, Lautaro Martinez og svo auðvitað Ademola Lookman.

Í frétt L'Équipe kemur fram að enginn sem kaus hafi verið með alla tíu í réttri röð og enginn heldur með þá fimm efstu í réttri röð.

Það voru hins vegar sjö sem voru með efstu fjóra í réttri röð eða þá Rodri, Vinicius Jr., Bellingham og Carvajal. Þeir blaðamenn komu frá Englandi, Ástralíu, Bandaríkjunum, Norður-Írlandi, Noregi, Slóvakíu og svo Íslandi.

Atkvæði Íslands er í höndum Víðis Sigurðssonar, blaðamanns Morgunblaðsins og höfund árbókarinnar um Íslenska Knattspyrnu frá árinu 1982.

Fimm tíu manna listar voru ekki með Rodri á lista og þrír voru ekki með Vinicius Jr. meðal þeirra tíu bestu í heimi. 

Einn af þeim sem var ekki með Vinicius á lista var blaðamaður frá Ekvador. Hann rökstuddi ákvörðun sína með því að vissulega væri Vinicius góður leikmaður en karakter hans og framkoma hafi orðið til þess að hann vildi ekki hafa hann inn á topp tíu hjá sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×