Fótbolti

Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri

Smári Jökull Jónsson skrifar
Cecelía Rán í leik með Inter fyrr á tímabilinu.
Cecelía Rán í leik með Inter fyrr á tímabilinu. Vísir/Getty

Cecelía Rán Rúnarsdóttir var í byrjunarliði Inter sem mætti Sampdoria á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Cecelía Rán er á láni frá Bayern Munchen og hefur fengið tækifæri í byrjunarliði Inter á tímabilinu. Þessi efnilegi markmaður hefur lítið leikið síðustu misseri eftir erfið meiðsli en vann sér sæti í landsliðinu á ný núna í haust eftir fína frammistöðu á Ítalíu.

Í dag mætti Inter liði Sampdora í útivelli. Cecelía Rán var í byrjunarliði Inter sem náði forystunni á 15. mínútu með marki Tessa Wullaert og hún bætti öðru marki við snemma í síðari hálfleik og tvöfaldaði þar með forystu Inter.

Hin þýska Lina Magull innsiglaði sigur Inter með marki á 74. mínútu, lokatölur 3-0. Inter er í 3. sæti deildarinnar eftir sigurinn, einu stigi á eftir Fiorentina og fjórum stigum á eftir toppliði Juventus sem á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×