Innlent

„Bóndinn á svæðinu er nú of­boðs­lega ró­legur yfir þessu“

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands birti þessa mynd af aðstæðum við Hvítá í gær.
Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands birti þessa mynd af aðstæðum við Hvítá í gær. mynd/eldfjalla- og náttúruvárhópur suðurlands

Flóð vegna klakastíflu í Hvítá við Brúnastaði er að mestu samt við sig miðað við í gærkvöldi og hafa litlar breytingar orðið á svæðinu að sögn náttúruvársérfræðings Veðurstofu Íslands. Lögreglan á Suðurlandi, almannavarnir og Veðurstofan fylgjast grannt með stöðu mála. 

Vatn tók að flæða yfir bakka Hvítár við Brúnastaði á fimmtudaginn vegna klakastíflu sem hefur myndast þar undanfarna daga. Steinunn Helgadóttir, náttúrúvársérfræðingur á vakt hjá Veðurstofunni, segir í samtali við Vísi að miðað við mælingar sé það eina nýja í stöðunni að vatnshæðin hafi farið mjög hægt lækkandi síðan í gærkvöldi.

Vatnshæðin sé nú komin rétt fyrir neðan hæð stíflu flóaveitunnar. Enn sé þó gert ráð fyrir að það flæði yfir bakkanna.

„Við erum með gulan borða á vefsíðunni þar sem hægt er að fræðast um þetta og líka inni á fréttatilkynningunni okkar í gær. Þar er hægt að opna skýrslu sem var gerð árið 2019, þar sem farið er yfir ýmsar sviðsmyndir um hvað getur gerst. Sumar sviðsmyndirnar eru rosalega ofsafengnar og eru ekki líklegar núna, því það flæðir ekki jafn mikið úr ánni og var gert fyrir í þeirri skýrslu.“  

Hún tekur fram að þó að vatnshæðin fari lækkandi má búast við að ástandið taki ekki miklum breytingum á næstu dögum vegna frosts. Spurð hvort að það séu einhver ákveðin tilmæli til almennings vegna flóðsins segir Steinunn:

„Það er bara þetta almenna, að fara varlega á þessu svæði og þetta helsta. Bóndinn á svæðinu er nú ofboðslega rólegur yfir þessu. Ég held að þau séu vön að það flæði á þessu svæði. Það er algengt að það verði ísstífla á þessu svæði.“

Lítið sé hægt að segja fyrir vissu um stöðuna að svo stöddu en von er á myndefni frá lögreglunni á Selfossi hvað úr hverju. Lögreglan hélt í átt að Hvítá, fyrr í dag til að taka myndir af ánni með dróna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×