Nýtt ár en áfram vinna Valskonur Sindri Sverrisson skrifar 4. janúar 2025 15:51 Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir skoraði fimm mörk fyrir Val í dag. vísir/Anton Valskonur unnu alla sína leiki árið 2024 og byrja nýja árið með sama hætti en þær unnu 34-20 stórsigur á Selfossi í dag, í Olís-deildinni í handbolta. Fram er næst á eftir Val, eftir 31-22 sigur gegn Gróttu á sama tíma.
Fyrr í dag unnu Haukar þriggja marka sigur gegn Stjörnunni, 32-29, í fyrsta leik deildarinnar eftir hléið langa vegna EM og jóla. Haukar sitja í 3. sæti með 14 stig en Fram er núna tveimur stigum ofar eftir að hafa skellt Gróttu í Úlfarsárdal í dag, þar sem staðan var 14-10 í hálfleik. Þórey Rósa Stefánsdóttir sagðist eftir EM í desember líklega hafa spilað sinn síðasta landsleik en hún er hvergi nærri hætt að skora mörk, og var markahæst hjá Fram í dag með sjö mörk. Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín kom næst hjá Fram með fimm mörk en Ída Margrét Stefánsdóttir var markahæst hjá Gróttu með átta mörk. Engin spenna var í leiknum á Selfossi þar sem meistarar Vals sýndu enga miskunn og voru sex mörkum yfir í hálfleik, 18-12, og unnu að lokum fjórtán marka sigur, 34-20. Þórey Anna Ásgeirsdóttir, sem dró sig út úr landsliðinu á síðasta ári og hefur því verið í hléi síðan í nóvember, var markahæst hjá Val með sjö mörk en landsliðskonan Elísa Elíasdóttir og Sigríður Hauksdóttir skoruðu sex mörk hvor. Hjá Selfossi var landsliðskonan Perla Ruth Albertsdóttir markahæst með sex mörk. Valskonur eru með fjögurra stiga forskot á Fram á toppi Olís-deildarinnar, með 20 stig eða fullt hús stiga eins og fyrr segir.
Olís-deild kvenna Fram Valur UMF Selfoss Grótta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira