Erlent

Ætlar að hitta kónginn í dag

Samúel Karl Ólason skrifar
Múte B. Egede, formaður landstjórnar Grænlands.
Múte B. Egede, formaður landstjórnar Grænlands. Facebook

Múte B. Egede, formaður landstjórnar Grænlands, mun hitta danska konunginn í dag þó fundurinn verði seinna en til stóð. Hætt var við fund þeirra á mánudaginn, á svipuðum tíma og fregnir bárust af því að Donald Trump yngri væri á leið til Grænlands eftir að faðir hans, verðandi forseti Bandaríkjanna, hafði talað um það að Bandaríkin ættu að eignast eyríkið.

Upprunalega átti Egede að funda með Friðrik konungi klukkan tíu í dag, að dönskum tíma, en nú á nýr fundur að eiga sér stað klukkan tvö, samkvæmt frétt DR. Það er klukkan eitt að íslenskum tíma.

Það að hætt var við fund Egeda og Friðriks á mánudaginn var af mörgum talið vandræðalegt fyrir kónginn.

Sjá einnig: Danir ekki í rónni með Græn­lands­heimsókn Trumps yngri

Fundurinn mun fara fram í skugga ummæla Trumps frá því í gær þegar hann hótaði því að beita Dani umfangsmiklum tollum til að þvinga þá til að láta Grænland af hendi og neitaði að útiloka að beita hervaldi til að öðlast eyjuna.

Sjá einnig: Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi

Blaðamaður DR náði tali af Egede þegar hann lenti í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Hann sagðist líta ummæli Trumps alvarlegum augum. Að öðru leyti tjáði hann sig lítið um ummælin.

Áður en Trump neitaði að útiloka hernaðaríhlutun skrifaði Egeda á Facebook að Grænland tilheyrði Grænlendingum. Framtíð Grænlendinga og barátta þeirra um sjálfstæði væri þeirra mál en öðrum, eins og Dönum og Bandaríkjamönnum, væri frjálst að hafa skoðun á stöðu Grænlands.

Hann sagði unnið að því á hverjum degi að gera Grænland sjálfstætt og Grænlendingar gætu og ættu að vinna með öðrum ríkjum.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sló á svipaða strengi í gær og sagði framtíð Grænlands vera í höndum Grænlendinga. Öll umræða um hana eigi að hefjast og enda í Nuuk.

Fréttin hefur verið uppfærð vaðrandi tímamuninn á Íslandi og Danmörku.


Tengdar fréttir

Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir framtíð Grænlands vera í höndum Grænlands. Öll umræða um framtíð Grænlendinga eigi að hefjast og enda í Nuuk.

Trump yngri á leið til Grænlands

Sonur verðandi forseta Bandaríkjanna er á leið til Grænlands. Trump hefur nýlega viðrað aftur hugmyndir sínar um að kaupa Grænland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×