Erlent

Vaktin: Vopna­hlé tekur gildi á Gasa

Samúel Karl Ólason skrifar
Vopnahléi fagnað á Gasaströndinni.
Vopnahléi fagnað á Gasaströndinni. AP/Abdel Kareem Hana

Ísraelar héldu í morgun loft- og stórskotaliðsárásum á Gasaströndinni áfram, þó vopnahlé hefði átt að taka gildi klukkan hálf sjö. Talsmaður Ísraelshers sagði leiðtoga Hamas ekki hafa framfylgt samkomulaginu með því að afhenda ekki nöfn þeirra þriggja gísla sem átti að sleppa úr haldi seinna í dag en nöfnin voru afhent um klukkan átta í morgun. 

Vopnahlé tók því gildi klukkan 9:15 að íslenskum tíma í morgun, eftir rúmlega fimmtán mánaða átök sem sögð eru hafa kostað að minnsta kosti 46 þúsund Palestínumenn lífið.

Í yfirlýsingu frá talsmanni Qassam-sveita Hamas segir að konurnar þrjár heiti Romy Jonin (24), Emily Damary (28) og Doron Shtanbar Khair (31).

Vopnahléið átti að taka gildi klukkan 6:30 að íslenskum tíma. Daniel Hagari, áðurnefndur talsmaður, sagði í morgun að árásum myndi ekki linna fyrr en Hamas framfylgdi samkomulaginu og afhenti nöfn gíslanna. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, sagði að vopnahléið hefjist ekki fyrr en listinn sé kominn í hendur Ísraelsmanna og gaf hann út sambærilega viðvörun í gærkvöldi.

Sjá einnig: Sam­þykktu vopna­hlé en fram­tíðin ó­ljós

Fram hefur komið að samkvæmt þessu þriggja fasa samkomulagi myndu Hamas-liðar sleppa fjölda gísla í skiptum fyrir það að Ísraelar sleppi Palestínumönnum úr fangelsi. Í fyrsta fasanum eiga Hamas-liðar að sleppa 33 gíslum yfir sex vikna tímabil og Ísraelar eiga að sleppa fjölmörgum Palestínumönnum úr fangelsum og þar á meðal dæmda hryðjuverkamenn.

Ísraelskir hermenn eiga einnig að hörfa frá byggðum Gasastrandarinnar á þessu tímabili og flæði neyðaraðstoðar á að aukast til muna.

Hér að neðan má sjá beina útsendingu AP fréttaveitunnar frá Khan Younis á Gasaströndinni.

Stórar spurningar eru uppi um hvað gerist eftir þetta sex vikna tímabil en viðræður um það eiga að hefjast tveimur vikum eftir að vopnahléið tekur gildi. Verði 33 gíslum sleppt á næstu sex vikum er talið að um hundrað verði áfram í haldi Hamas og að þriðjungur þeirra sé látinn.

Fylgst verður með vendingum dagsins í vaktinni hér að neðan. Sjáist hún ekki gæti þurft að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×