Viðskipti innlent

Yfirtakan hækkaði gengi krónunnar tölu­vert

Árni Sæberg skrifar
Brian Deck, forstjóri JBT Marel, Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel og Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, þegar bjöllunni var hringt á fyrsta degi viðskipta með bréf í JBT Marel.
Brian Deck, forstjóri JBT Marel, Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel og Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, þegar bjöllunni var hringt á fyrsta degi viðskipta með bréf í JBT Marel. nasdaq iceland

Yfirtaka JBT á Marel hafði talsverð áhrif á gengi krónunnar árið 2024, sem hækkaði um fjögur prósent á árinu. Krónan hefur ekki verið stöðugri frá árinu 2015.

Í yfirliti sem Seðlabankinn hefur birt segir að heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri hafi dregist saman á milli ára og minni sveiflur verið á gengi krónunnar en undanfarin ár. Stöðugleiki hafi einkennt gjaldeyrismarkaðinn lengst af eða þar til í ágúst, þegar gengið lækkaði, en í september hafi krónan tekið að styrkjast. Sú þróun hafi haldið áfram fram undir lok árs. 

Greip einu sinni inn í

Seðlabankinn hafi einu sinni gripið inn í gjaldeyrismarkaðinn þegar hann keypti gjaldeyri fyrir um 9,2 milljarða króna í febrúar, til að bregðast við innflæði erlends fjármagns í ríkisskuldabréf. 

Vaxtamunur við útlönd hafi áfram verið nokkur og erlendir aðilar hafi keypt meira af innlendum ríkisskuldabréfum en árið á undan. Lífeyrissjóðir hafi áfram verið umfangsmiklir kaupendur gjaldeyris og kaup þeirra hafi aukist lítillega milli ára. Hrein staða framvirkra gjaldmiðlasamninga viðskiptabanka hafi lækkað yfir árið í heild. 

Stór yfirtaka hafði áhrif

Viðskipti í tengslum við yfirtökutilboð John Bean Technologies, JBT, á Marel hafi haft áhrif á gjaldeyrismarkaðinn á árinu, en yfirtakan hafi verið stór á íslenskan mælikvarða. 

Ríkissjóður hafi tvívegis gefið út skuldabréf í evrum á árinu, samtals að fjárhæð 800 milljónir evra og vaxtaálag á erlendar skuldabréfaútgáfur ríkissjóðs og viðskiptabankanna hafi lækkað. Gjaldeyrisforði Seðlabankans hafi numið 886 milljörðum króna í árslok eða 20 prósent af vergri landsframleiðslu.


Tengdar fréttir

Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT

Forstjóri Marels fagnar því að yfirgnæfandi meirihluti hluthafa Marels hafi samþykkt yfirtökutilboð John Bean Technologies Corporation (JBT) í Marel. JBT Marel muni búa yfir miklum sóknarfærum.

JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni

JBT Marel Corporation , nýlega sameinað fyrirtæki JBT Corporation og Marel hf., var í formlega tekið til viðskipta á aðalmarkað Nasdaq Íslands þann 3. janúar síðastliðinn. 

Til­boð JBT kom hluta­bréfa­markaðnum á flug

Hlutabréfamarkaðurinn, sem er góðri siglingu, þurfti afgerandi jákvæð skilaboð til að komast úr hjólförum sem hann var fastur í en umtalsverðar lækkanir höfðu einkennt gengisþróunina lengst af á árinu sem var að líða. Þau fékk hann með yfirtökutilboði frá JBT í Marel fyrir skemmstu og jákvæðum tóni í kjaraviðræðum. Frá þeim tíma hefur mikil stemning ríkt á markaðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×