Skoðun

Takk Vöku­deild (nýburagjörgæslan)

Guðmunda G Guðmundsdóttir skrifar

Mig langar að þakka starfsfólkinu á Vökudeildinni (nýburagjörgæslunni) fyrir ósérhlífið starf í þágu fjölmargra fyrirburar og aðrir veikir nýburar og stuðningi við foreldra þeirra.

Að lenda með barnið sitt á Vökudeild er mjög erfitt og krefjandi en flestir finna fljótt að þeir eru í góðum höndum og í raun alveg ótrúlega starf sem þau á Vökudeildin vinna.

Þarfir barnanna eru mis flókin og alvarleg og margt sem þarf að huga að í umönnun þeirra og kraftaverk hvað er hægt að gera nú orðið.

Með hverju barni fylgir svo foreldrar, hræddir og áhyggjufullir horfandi á barnið sitt tengt við allskonar tæki og í hitakassa og ekki vitandi hvað bíður þeirra né barnsins, en þau finna fljótt að starfsfólkið hugsara vel um þau og barnið, veita í raun áfallahjálp á staðnum því þetta er vissulega áfall.

En þó undarlegt sé þá skortir mörg hjálpartæki á þessa mikilvægu deild og þurfa foreldrar stundum að bíða eftir að röðin kemur að þeim, það eru til dæmis ekki til margar tvíburavöggur né gjafapúðar fyrir tvíburaforeldra en flestir tvíburar þurfa á Vökudeildina fyrstu dagana.

Skjólstæðingar vökudeildar eru fyrirburar og aðrir veikir nýburar og eru árlegar innlagnir um 400 börn og tæplega 700 nýburar koma á dagdeild vökudeildar á ári hverju.

Það er komið ár síðan ömmustelpan mín átti sína tvíbura og þurfti að dvelja nokkrar vikur hjá þeim á Vökudeildinni.

Ég fór aðeins yfir það í grein Það er fæddur einstaklingur sem ég skrifar 6. september 2024

Af tilefni ársafmæli strákana eru foreldrarnir með söfnun því þau vilja gefa til baka í þakklætisskyni, eða með þeirra orðum

„Til að heiðra það ótrúlega starf sem Vökudeildin vinnur og til að þakka fyrir allt sem þau gerðu fyrir Ými, langar okkur að efna til söfnunar í þeirra þágu í tilefni dagsins. Við viljum leggja okkar af mörkum til að tryggja að önnur börn og fjölskyldur sem lenda í svipaðri stöðu og þurfa að eyða fyrstu dögum/vikum/mánuðum á vöku fái áfram þá frábæru þjónustu sem við fengum.❤️

Við hvetjum alla sem vilja styðja okkur í þessu að leggja sitt af mörkum. Allt sem safnast mun renna beint í að styðja við starfsemi Vökudeildarinnar. Við stefnum á að fara upp á vöku á afmælisdaginn þeirra með þessa gjöf.🥰❤️

Rkn: 220015038779

Kt. 3010043030

Takk fyrir að fagna með okkur❤

– Með ást, María, Oddur, Loki og Ýmir.“

Höfundur er stolt amma og langamma.




Skoðun

Sjá meira


×