Íslenski boltinn

Tvö af þremur fé­lögum í úr­slita­leik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garða­bæ

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frá leik Víkings og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna síðasta sumar.
Frá leik Víkings og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna síðasta sumar. Vísir/Diego

Víkingur og Stjarnan/Álftanes mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna í ár en þetta er staðfest á heimasíðu KSÍ.

Leikurinn fer fram sunnudaginn 2. febrúar næstkomandi klukkan 18:00 í Egilshöll.

Stjarnan/Álftanes vann alla sína leiki í riðlakeppninni en þar mætti liðið Fylki, KR og Val. Markatala liðsins var 15-6 og markahæst er Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir með þrjú mörk.

Víkingur vann einnig alla sína leiki í riðlakeppni en ásamt Víking í riðli voru Fjölnir, Þróttur R og Fram. Markatala liðsins var 19-2 og markahæst er Freyja Stefánsdóttir með fimm mörk.

Ef það verður jafnt eftir venjulegan leiktíma í leiknum þá verður strax gripið til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.

Víkingur er ríkjandi Reykjavíkurmeistari en stelpurnar unnu mótið í fyrsta sinn í fyrra. Þá unnu þær 2-1 sigur á Fylki í úrslitaleiknum.

Valur og KR mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts meistaraflokks karla. Leikurinn fer fram fimmtudaginn 30. janúar klukkan 20:00 í Egilshöll.

Valur vann alla sína leiki í riðlakeppninni en þar mætti liðið Þrótti R., Fram og Fylki. KR hafði betur gegn Fjölni, Víking og Leikni R. en tapaði gegn ÍR í sínum riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×