Íslenski boltinn

Norðurálsmótið fagnar fjöru­tíu ára af­mæli í ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Norðurálsmótið er fyrsta gistimót ungra fótboltakrakka.
Norðurálsmótið er fyrsta gistimót ungra fótboltakrakka. ía

Eitt stærsta íþróttamót barna, Norðurálsmótið á Akranesi, heldur upp á fjörutíu ára afmæli sitt á þessu ári. Búist er við tæplega þrjú þúsund þátttakendum á mótinu.

Margir af bestu fótboltamönnum Íslands hafa stigið sín fyrstu skref á Norðurálsmótinu sem hefur verið haldið á hverju sumri síðan 1985.

Mótið er núna fyrir 7. og 8. flokk drengja og 7. flokk stúlkna. Metfjöldi tók þátt á mótinu í fyrra þegar um 2.500 fótboltastrákar og -stelpur kepptu sín á milli á Akranesi.

Norðurálsmótið í ár verður það stærsta frá upphafi en búist er við 2.800 þátttekendum á því. 

Í tilefni af því gerði ÍA skemmtilegt myndband þar sem fótboltakrakkar leika listir sínar. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Norðurálsmótið fjörutíu ára

Eins og síðustu ár sýnir Stöð 2 Sport sérstakan þátt um Norðurálsmótið en hann er hluti af Sumarmótunum vinsælu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×