Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt Valur Páll Eiríksson skrifar 27. mars 2025 12:50 KR kynnti nýja treyju í myndskeiði sem birt var á samfélagsmiðlum liðsins í dag. Mynd/KR KR birti myndskeið á samfélagsmiðlum félagsins í hádeginu þar sem keppnistreyjan fyrir komandi fótboltasumar var kynnt. Treyjan sækir innblástur til 100 ára afmælisárs félagsins, 1999, og fyrirliði þess tíma bregður fyrir.
Nýja treyjan er framleidd af Macron og er hönnuð af Ólafi Þór Kristinssyni og Jóni Kára Eldon. „Treyja KR í ár sækir innblástur sinn til ársins 1999 — eins sigursælasta tímabils í sögu félagsins, þegar bæði karla- og kvennalið KR urðu tvöfaldir meistarar. Smáatriðin í treyjunni vísa til gullaldartímans og sögu KR þar sem nútímalegur blær og klassík mætast í fullkomnu jafnvægi,“ segir í yfirlýsingu KR. Myndskeið þar sem treyjan er kynnt til leiks má sjá í spilaranum að neðan. Þar kemur fyrirliði karlaliðs KR frá 1999, Þormóður Egilsson, við sögu. Nýja Macron treyja KR í ár sækir innblástur sinn til ársins 1999 — eins sigursælasta tímabils í sögu félagsins, þegar bæði karla- og kvennalið KR urðu tvöfaldir meistarar.Forsala á nýju KR-treyjunni er hafin: https://t.co/4GJbHwJvEW pic.twitter.com/uTCWmfGs2E— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) March 27, 2025 KR leikur í Bestu deild karla í sumar og Lengjudeild kvenna. Keppni í Bestu deildinni hefst um þarnæstu helgi, en KR mætir KA á Akureyri í fyrsta leik. Í þeim leik verður nýja treyjan vígð. KR mætir Víkingi í Víkinni annað kvöld, klukkan 19:00 í úrslitaleik Bose-bikarsins. Sá leikur verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Ný treyja KR sem liðið klæðist í Bestu deild karla og Lengjudeild kvenna í sumar.Mynd/KR
KR Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla Lengjudeild kvenna Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira