Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. apríl 2025 07:02 Áreitið hefur tekið sinn toll af Sveini og komið er að tímamótum. Hann kveður 2020 Model 3 Tesluna sína eftir 65 þúsund kílómetra á rúntinum undanfarin ár. Vísir/Anton Brink Sveinn Waage framkvæmdastjóri hefur sett Tesluna sína á sölu. Hann segist langþreyttur á því áreiti sem fylgi því að eiga slíkan bíl. Hann vill losna við fararskjótann sem fyrst og slær því vel af verðinu. Hann sér frið og ró sem því fylgi í hillingum.
Athugasemd ritstjórnar: Um var að ræða aprílgabb Vísis árið 2025. Hrina skemmdarverka á Teslum í Bandaríkjum undanfarnar vikur og mánuði hefur fengið margan eigandann til að hugsa sig um. Elon Musk, auðugasti maður heims og bandamaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, er stærsti hluthafinn í Teslu. Kveikt hefur verið í bílum og skotið á sölustaði Tesla í Bandaríkjunum. Trump hefur lýst skemmdarverkunum sem hryðjuverkum. Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar labbaði fram á skemmdarverk á Teslu nærri heimili hans í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku. „Þetta er orðið mjög þreytt,“ segir Sveinn sem hefur notið þess undanfarin ár að aka um á Teslunnni sinni. Hann er langt í frá einn á báti. Bíllinn hefur verið sá vinsælasti meðal Íslendinga undanfarin ár. Teslan hans Sveins er Model 3 af árgerð 2020. „Það var algjör bylting að eignast Tesluna mína. Aflið, græjurnar og tæknin maður minn, enda stóð maður sig ítrekað í því að taka lengri rúntinn heim“ segir Sveinn. Sveinn vonast til að geta gengið frá viðskiptunum fyrst og sér ekki fyrir sér að takast á um einhverja hundrað þúsund kalla. Hann vilji einfaldlega selja bílinn.Vísir/Anton Brink Vendingar vestan hafs hafi gert það að verkum að rúntarnir eru ekki lengur skemmtilegir heldur hreint og beint óþægilegir. Finnst hann dæmdur í Teslunni „Nú líður mér eins og allir séu að horfa á mig. Og dæma mig,“ segir Sveinn og tekur fram að hann hafi keypt Tesluna löngu áður en Elon Musk var orðinn innsti koppur í búri Trump. Hann hafi fyrst hlegið að fréttum af áreiti gagnvart Teslueigendum en nú sé staðan önnur. Allt önnur. Á dögunum varð Sveinn svo var við rispu á bíl sínum, á bílstjórahurðinni. Hann segist ekki hafa neinar beinar sannanir að um skemmdarverk sé að ræða en það liggi í augum uppi. „Þetta er ekki stór rispa, ég náði að laga hana, en hún fékk mig til að hugsa málið,“ segir Sveinn. Niðurstaðan er að selja bílinn, og kaupa óumdeildari bíl. Kannski er óhætt núna að kaupa sér Range Rover núna án þess að vera dæmdur.“ Sveinn brosir en segist þó eiga eftir að reikna dæmið til enda. „Ég er líka til í að skoða skipti,“ segir Sveinn sem sem ætlar að slá vel af markaðsvirði Teslunnar. Bjóða í raun hlægilegt verð en ætlar þó ekki niður fyrir eina og hálfa milljón króna. „Ég vil bara selja þennan bíl, losna við Elon Musk úr mínu lífi og verða frjáls maður á ný.“ Áhugasamir geti haft samband í síma 625-2299. „Fyrstur kemur, fyrstur fær.“
Tesla Reykjavík Elon Musk Bílar Aprílgabb Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira