Mikael Egill spilaði allan leikinn þegar Venezia komst upp úr fallsæti Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. maí 2025 16:00 Mikael Egill í leik dagsins. Maurizio Lagana/Getty Images Mikael Egill Ellertsson spilaði allan leikinn þegar Venezia komst upp úr fallsæti þökk sé 2-1 sigri á Fiorentina í 36. umferð Serie A, efstu deildar ítalska fótboltans. Albert Guðmundsson var ekki í leikmannahóp gestanna vegna smávægilegra meiðsla. Þá sat Bjarki Steinn Bjarkason allan tímann á varamannabekk Venezia. Mikael Ellert var nálægt því að skora í fyrri hálfleik en David de Gea sá við honum í marki gestanna. Staðan var markalaus í hálfleik en á 17 mínútna kafla í síðari hálfleik litu þrjú mörk dagsins ljós. Fali Candé kom heimamönnum yfir og Gaetano Oristanio tvöfaldaði forystuna áður en Rolando Mandragora minnkaði muninn. Þegar tvær umferðir eru eftir af Serie A er Venezia í 17. sæti með 29 stig, einu stigi fyrir ofan Þóri Jóhann Helgason og félögum hans í Lecce sem sitja í fallsæti. Fiorentina er í 9. sæti með 59 stig, fimm stigum á eftir Juventus í 4. sæti. Ítalski boltinn Fótbolti
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn