Aron og Bjarki ungverskir meistarar á kostnað Janusar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. júní 2025 17:40 Veszprém er ungverskur meistari í handbolta. Andreas Gora/picture alliance via Getty Images Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson eru ungverskir meistarar í handbolta eftir að Veszprém vann þriggja marka sigur gegn Pick Szeged í oddaleik um titilinn í dag.
Hvorki Aron né Bjarki voru í leikmannahópi Veszprém í dag, eins og greint var frá hér á Vísi fyrir leik. Þrátt fyrir það geta þeir félagar líklega fagnað vel og innilega, sérstaklega í ljósi þess að leikurinn markar endalok glæsts handboltaferils Arons Pálmarssonar. Aron hafði sjálfur greint frá því að þetta yrði hans síðasta tímabil. Eftir að hafa tryggt sér oddaleik með sigri á heimavelli í síðasta leik áttu gestirnir í Pick Szeged, með Janus Daða Smárason innaborðs, í stökustu vandræðum með að hemja sóknarleik Veszprém í dag. Liðið komst yfir í upphafi leiks og leiddi 1-3 eftir um fimm mínútna leik, en eftir það höfðu heimamenn í Veszprém yfirhöndina. Munurinn á liðunum varð þó aldrei meiri en þrjú mörk fyrir hlé og staðan í hálfleik var 17-15, Veszprém í vil. Í síðari hálfleik skiptust liðin á að hafa forystuna fyrstu mínúturnar, en heimamenn náðu svo þriggja marka forystu í stöðunni 25-22 þegar rétt rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka. Mest náðu heimamenn sex marka forystu í stöðunni 29-23. Það bil náðu Janus og félagar aldrei að brúa og niðurstaðan varð að lokum þriggja marka sigur Veszprém, 34-31. Veszprém er því ungverskur meistari, en gestirnir í Pick Szeged þurfa að gera sér silfrið að góðu.
Ungverski handboltinn Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira