Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Lovísa Arnardóttir skrifar 13. júní 2025 10:40 Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins í fundi samninganefnda í vetur. Vísir/Vilhelm Kjarasamningar til ársins 2028 hafa verið undirritaðir fyrir nær allt launafólk bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði í yfirstandandi samningalotu sem hófst í febrúar 2024. Í heild er áætlað að gerðir hafi verið um 250 kjarasamningar í núverandi lotu. Á kjörskrám stéttarfélaganna voru um 189 þúsund manns.
Samningar fyrir flest launafólk voru gerðir á tímabilinu mars til september 2024. Þetta kemur fram í vorskýrslu Kjaratölfræðinefndar, KTN, þar sem fjallað er um þróun efnahagsmála og launa, vinnumarkaðsmál og kjarasamninga. Síðasti stóri kjarasamningurinn í þessari lotu var gerður í febrúar á þessu ári við Kennarasamband Íslands. Hann fól í sér þá nýlundu að vera sameiginlegur samningur ríkis og sveitarfélaga við öll aðildarfélög KÍ. Samningurinn var undirritaður eftir langa kjaradeilu og byggir á innanhústillögu ríkissáttasemjara. Í skýrslu nefndarinnar segir að samningurinn sé nokkuð frábrugðinn öðrum samningum í lotunni. Í skýrslunni eru birt sundurliðuð gögn KTN um launaþróun til janúar 2025. Þar birtist töluverður munur á þróun milli markaða frá upphafi samningalotunnar í febrúar 2024. Laun hækkuðu samkvæmt þessum gögnum mest á almenna markaðnum þar sem tvær kjarasamningsbundnar hækkanir komu til framkvæmda en minna á opinberum markaði þar sem aðeins ein hækkun var á tímabilinu og samningum kennara var ólokið. Önnur hækkun á opinberum vinnumarkaði kom til framkvæmda í apríl 2025 og samningum kennara lauk í febrúar sem ekki endurspeglast í gögnum KTN að þessu sinni. Grunntímakaup hækkað um tíu prósent á ári Í skýrslunni segir að grunntímakaup, sem best endurspegli umsamdar launahækkanir, hafi hækkað um 10,2 prósent á almennum markaði á tímabilinu frá janúar 2024 til janúar 2025 en hækkunin hafi numið 5,7 prósentum hjá ríki og Reykjavíkurborg og 6,1 prósentum hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur. Í samningalotunni hafi almennt verið farin blönduð leið krónutöluhækkana og prósentuhækkana og því séu launahækkanir hlutfallslega mestar á lægri laun. Þá kemur einnig fram að teknu tilliti til verðlagsþróunar hafi kaupmáttur grunntímakaups í janúar 2025 aukist um 4,2 prósent frá upphafi samningalotunnar. Á almennum vinnumarkaði var kaupmáttaraukningin 5,3 prósent, hjá ríki og Reykjavíkurborg 1,0 prósent og hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 1,4 prósent. Áhersla á krónutöluhækkanir í kjarasamningum á undanförnum árum hefur auk þess samkvæmt skýrslunni leitt til þess að munur á hæstu og lægstu launum á vinnumarkaði hafi dregist saman og lækkað tíundastuðla markvert á árunum 2019-2022. Á síðustu tveimur árum hafi sú þróun haldið áfram á opinberum vinnumarkaði en lítilsháttar viðsnúningur orðið á almennum markaði. Kaupmáttur að aukast Í skýrslu kjaratölfræðinefndar er einnig fjallað um efnahags- og vinnumarkaðsmál. Þar er meðal annars umfjöllun um þróun verðlags, vaxta, opinberra fjármála og framleiðni. Auk umfjöllunar um þróun vinnumarkaðar, atvinnuþátttöku ólíkra hópa og búferlaflutninga og hagsveiflur. Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 2,7 prósent árið 2023 og 2,8 prósent í fyrra sem er mun meira en kaupmáttur launa. Háir vextir og verðhækkanir hafa þrengt að mörgum heimilum en fjárhagsstaða heimilanna er samkvæmt skýrslunni heilt yfir sterk og vanskil lítil í sögulegu tilliti. Meiri munur á atvinnuþátttöku kynja þegar ung börn eru á framfæri Dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði og starfandi fólki fjölgar hægar en áður. Atvinnuástandið er áfram gott og atvinnuþátttaka mikil. Á síðustu áratugum er töluverð fylgni milli hagsveiflna og búferlaflutninga þannig að þegar hægist um í efnahagslífinu dregur úr flutningi fólks til landsins og eru vísbendingar um að svo sé einnig nú. Munur á hlutfalli starfandi kvenna og karla er meiri meðal þeirra sem eru með ung börn á framfæri en í öðrum hópum. Þó dregið hafi úr þeim mun á undanförnum áratugum er enn mun meiri munur á atvinnuþátttöku kynjanna í þessum hópi en hjá þeim sem ekki hafa börn á framfæri.
Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Efnahagsmál Fjármál heimilisins Stéttarfélög Fæðingarorlof Seðlabankinn Kennaraverkfall 2024-25 Tengdar fréttir Kjarasamningur lyfjafræðinga „illa felldur“ og átján ára bið lengist Lyfjafræðingar felldu innanhústillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Lyfjafræðingafélags Íslands við Samtök atvinnulífsins með níutíu prósentum atkvæða. Núverandi samningur er orðinn átján ára gamall en formaður félagsins segir félagsmenn hafa upplifað nýjan samning sem réttindaskerðingu. 20. maí 2025 15:18 Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 670 milljóna króna hagræðingaraðgerðir til þess að mæta launahækkunum kennara í gærkvöldi. Laun kjörinna fulltrúa verða meðal annars lækkuð, opnunartími í sundlaugar verður skertur og sumarstörfum fækkar. 9. apríl 2025 08:56 Mest lesið „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Sjá meira
Kjarasamningur lyfjafræðinga „illa felldur“ og átján ára bið lengist Lyfjafræðingar felldu innanhústillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Lyfjafræðingafélags Íslands við Samtök atvinnulífsins með níutíu prósentum atkvæða. Núverandi samningur er orðinn átján ára gamall en formaður félagsins segir félagsmenn hafa upplifað nýjan samning sem réttindaskerðingu. 20. maí 2025 15:18
Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 670 milljóna króna hagræðingaraðgerðir til þess að mæta launahækkunum kennara í gærkvöldi. Laun kjörinna fulltrúa verða meðal annars lækkuð, opnunartími í sundlaugar verður skertur og sumarstörfum fækkar. 9. apríl 2025 08:56