Uppgjörið: Fram - Þróttur | Þróttarar stöðva sigurgöngu Fram Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 20. júní 2025 17:15 Þóttur- Fram áttust við í bestu deild kvenna í knattspyrnu 2025. Fram tók á móti Þrótti í 10. umferð Bestu deildar kvenna á Lambhagavelli í kvöld. Þróttur sigraði leikinn og er þar með búin að endurheimta topp sætið í bili, en Breiðablik og FH eiga eftir að spila leiki sína. Þróttur byrjaði leikinn af krafti og skoraði fyrsta mark leiksins á 4. mínútu. Elaina varði skot Þórdísar Elvu Ágústsdóttir en Jelena Tinna Kujundzic náði frákastinu og kom boltanum yfir línuna. Þróttarar voru afar öflugar í fyrri hálfleik og bættu við öðru marki á 23. mínútu eftir hornspyrnu Katie Cousins þar sem Unnur Dóra Bergsdóttir skoraði laglegt skallamark. Þróttur átti einstaklega góða spilakafla, fullt af hornspyrnum og heimakonur heppnar að fara einungis tveimur mörkum undir út úr fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur var jafnari og áttu bæði lið góða spilkafla. Á 81. mínútu bætti Þórdís Elva Ágústsdóttir við stórkostlegu þriðja marki Þróttar, sláin og inn. Caroline Murray leikmaður Þróttar gaf stoðsendinguna og er það síðasta framlag hennar því hún fer nú á vit ævintýranna til Bandaríkjanna að spila. Fram náði aðeins að klóra í bakkann á 84. mínútu og skoraði Sara Svanhildur Jóhannsdóttir laglegt mark upp úr aukaspyrnu frá Elainu Carmen La Macchia markmanni Fram. Fleiri urðu mörkin ekki og með sigrinum fer Þróttur með 25 stig inn í landsleikjahléið og trónir á toppi deildarinnar það sem af er umferðar. Atvik leiksins Á 7.mínútu leiksins er dæmt brot á Sæunni Björnsdóttir í aðdraganda hornspyrnu Þróttar. Það sem glöggir sáu hins vegar var það að markvörður heimakvenna Elaina Carmen La Macchia gerði sér lítið fyrir og reif Sæunni Björnsdóttir niður á hárinu. Stjörnur og skúrkar Katie Cousins skilar alltaf sínu, einstaklega góð á miðjunni að stýra spilinu. Jelena Tinna Kujundzic er frábær í hjarta varnarinnar, góð með boltann og líkt og Katie Cousins nær hún að stýra spilinu vel. Unnur Dóra Bergsdóttir skoraði glæsilegt skallamark og var flott í sóknarleiknum. Þórdís Elva Ágústsdóttir er ómissandi á miðjunni og svo skoraði hún þriðja mark Þróttar sem var af dýrari gerðinni. Stemning og umgjörð Leikurinn er á föstudegi kl. 18:00 og allir og vinir þeirra voru á leiðinni út úr bænum en það kom ekki að sök, hér voru allir mættir tímanlega og í góðu skapi. Umgjörðin hjá Fram er frábær og ég mæli eindregið með því að mæta á leik á Lambhagavelli. Dómarar Bríet Bragadóttir, Kári Mímisson og Eydís Ragna Einarsdóttir dæmdu þokkalega í dag. Nokkur brot sem hefði alveg mátt dæma á. Svo gerðist eitt skemmtilegt Bríet Bragadóttir dæmdi hornspyrnu eftir að Mollee Swift hélt á boltanum lengur en 8 sekúndur en það er ný regla fyrir þá sem vita ekki. Annars fær tríóið bara góða sjöu frá mér. Íslenski boltinn Besta deild kvenna Fram Þróttur Reykjavík