Falsaði fleiri bréf Agnar Már Másson skrifar 8. júlí 2025 20:37 Tripical skipulagði fræðsluferð til Reims í Frakklandi fyrir kennara. Kennarasambandið þurfti að fá staðfestingarbréf frá skólunum svo það gæti veitt styrk. Verktaki á vegum Tripical falsaði bréfin. Samsett Mynd Verktaki á vegum Tripical falsaði bréf frá fleiri en einum skólastjóra í Frakklandi. Staðfestingabréfin voru meðal annars grundvöllur þess að Kennarasambandið greiddi starfsfólki ferðastyrk fyrir fræðsluferðir.
Vísir greindi frá því í síðustu viku að verktaki á vegum ferðaskrifstofunnar Tripical hefði falsað staðfestingarbréf frá frönskum skólastjóra, sem var meðal annars grundvöllur þess að fræðsluferð starfsfólks Hofsstaða væri styrkt af Kennarasambandi Íslands. Hofsstaðaskóli í Garðabæ og Stekkaskjól á Selfossi fóru í fræðsluferðir til Reims 7.-12. júní. Ferðirnar voru skipulagðar af Tripical og styrktar úr endurmenntunarsjóði KÍ, sem þarf þó að sjá dagskrá og fá staðfestingar um skólaheimsóknir til að ferðir séu styrkhæfar. Ferðanefndir skólanna rukkuðu því Tripical um boðsbréf frá frönsku skólunum sem þau hyggðust heimsækja, sem gekk treglega fyrir sig í fyrst, að sögn kennara, en bréf skiluðu sér á endanum. Degi fyrir brottför var þó skólaheimsóknunum aflýst, en þá hafði KÍ þegar greitt út styrkinn og kennarar þegar greitt staðfestingargjald fyrir ferðina. En eins og kom fram í fréttaflutningi Vísis í síðustu viku var bréfið sem Hofstaðaskóli fékk fyrir skólaheimsóknina falsað. Tripical gekkst við því. „Bréfið er ekki frá mér“ Og svo virðist sem bréfin sem Stekkjaskóli fékk hafi einnig verið fölsuð, að sögn Lilju Óskar Kristbjarnardóttur, kennara í Stekkjaskóla. Samskipti kennara Stekkjaskóla við skólana í Frakklandi renna einnig frekari stoðum undir þá tilgátu. „Bréfið er ekki frá mér en ég hafði í raun verið í sambandi við ferðaskrifstofuna til að skipuleggja fund, ég hef síðan ekki haft nein ný samskipti til að fylgja því eftir,“ segir í tölvupósti frá skólastýru Notre Dame-skólans í Reims til kennaranna í Stekkjaskóla en hún er undirrituð fyrir bréfi sem Kennarasambandið fékk upp á staðfestingu á skólaheimsókn. „Ég er sannarlega mjög hissa á því að bréf hafi borist ykkur í mínu nafni!“ bætir hún við. Yfirskólastýran í Reims segir einnig við Stekkjaskóla að bréfið sem sent var í hennar nafni hafi ekki verið ekta en Hofstaðaskóla barst einmitt svipað skeyti frá henni hvað þeirra heimsókn varðar. Vissulega fékk Stekkjaskóli að fara í eina skólaheimsókn sem var þó ekki í þá fyrirhuguðu skóla en Lilja Ósk segir þá heimsókn hafa verið lélega og að enginn hafi virst eiga von á hópnum, í raun eins og hún hafi verið skipulögð með litlum fyrivara. Tripical: Kom í ljós að málin voru fleiri Tripical viðurkennir í svari við fyrirspurn Vísis að fölsuðu bréfin séu fleiri en bara þetta eina atvik með hofstaðaskóla. Ferðaskrifstofan segist taka þessu máli alvarlega og hafa hafið yfirferð þess í samstarfi við Kennarasamband Íslands. Tripical sé í beinum samskiptum við KÍ og hafi átt samtöl til að skýra málið og tryggja réttan farveg. „Fulltrúar KÍ eru upplýstir um öll þau bréf sem málið snýr að. Þegar við ræddum saman vissi ég aðeins af einu tilviki, en í framhaldinu hefur komið í ljós að þau voru fleiri,“ segir í svari Elísabetar Agnarsdóttur, framkvæmdastjóra Tripical, við fyrirspurn blaðamanns. Elísabet segir þó að allir sem fóru í þessar ferðir með Tripical hafi fengið þá fræðslu sem samið hafi verið um og fulla fræðslutímaskráningu í samræmi við reglur KÍ. Árlega fari yfir þúsund aðilar í fræðsluferðir með Tripical. Það samstarf hafi gengið mjög vel. Spurð út í þann verktaka sem kom að málinu segir Elísabet að þeir verktakar Tripical sjálfstætt og hafi ekki verið á launaskrá hjá ferðaskrifstofunni. „Í því tilviki sem hér er nefnt viljum við taka skýrt fram að viðkomandi verktaki hefur aldrei starfað hjá Tripical og er ekki starfsmaður fyrirtækisins. Hann hafði takmarkað hlutverk við samskipti við erlenda skóla í tengslum við fræðsluhlutann. Þau samskipti fóru beint milli skóla og viðkomandi, og það er á ábyrgð skóla að skila inn upplýsingum til KÍ.“ Umdeildir viðskiptahættir Tripical Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Tripical ratar í fréttirnar. Ferðaskrifstofan vakti athygli árið 2020 þegar hún vildi ekki endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri vegna útskriftarferðar sem raskaðist vegna heimsfaraldurs eftir að hafa gefið þeim sólarhring til að ákveða sig hvort þeir færu í útskriftarferð eða ekki. Árið 2022 vakti það einnig athygli fjölmiðla að Tripical hefði tuttugu dögum fyrir áætlaða brottför tilkynnt viðskiptavinum sínum um fimmtán þúsund króna verðhækkun og vísað til hækkunar á eldsneytisverði sem vegna stríðsins í Úkraínu. Þar var einnig um að ræða útskriftarferðir menntskælinga. Neytendastofa úrskurðaði að hækkunin hafi verið óheimil. Á þessum tíma var Tripical rekið undir nafninu TT ferdir en ferðaskrifstofuleyfi fyrirtækisins var fellt úr gildi af hálfu Ferðamálastofu sumarið 2023. TT ferdir ehf. var úrskurðað gjaldþrota haustið 2024 en nú starfar félagið undir nafninu Tripical Ísland ehf. Rekstrartekjur hins félagsins voru 1.119 milljónir króna árið 2023 rekstrar hagnaður 25 milljónir.
Ferðalög Ferðaþjónusta Neytendur Skóla- og menntamál Efnahagsbrot Íslendingar erlendis Árborg Garðabær Mest lesið Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Sjá meira