Sport

Banna trans konum að keppa á Ólympíu­leikunum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Laurel Hubbard var fyrsta trans konan til að keppa á Ólympíuleikunum, í Tókýó 2020.
Laurel Hubbard var fyrsta trans konan til að keppa á Ólympíuleikunum, í Tókýó 2020. Wally Skalij /Los Angeles Times via Getty Images

Ólympíunefnd Bandaríkjanna hefur uppfært stefnuskrá sína fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028 til að samræmast stefnu Bandaríkjaforsetans Donald Trump, sem undirritaði tilskipun fyrr á þessu ári þar sem trans konum var bannað að keppa í kvennaíþróttum.

Uppfærð stefnuskrá var birt hljóðlega á heimasíðu Ólympíunefndarinnar á mánudag og inniheldur heilmikið illskiljanlegt lagamál.

Stefnuskráin er nokkuð óskýr og minnist ekki orðrétt á trans konur en þar segir að stefnu Trump verði fylgt eftir og „konum verði tryggður jafningjagrundvöllur og öruggt keppnisumhverfi.“

Trump undirritaði fyrr á þessu ári forsetatilskipun sem birtist á heimasíðu Hvíta Hússins undir fyrirsögninni „Höldum körlum frá kvennaíþróttum“ þar sem íþróttahreyfingar voru hvattar til að setja viðurlög og reglugerðir til að koma í veg fyrir þátttöku trans kvenna í kvennaíþróttum.

Þrátt fyrir að hafa ekki hátt um það ætlar Ólympíunefndin að fylgja þeim fyrirmælum eftir.

Málefni trans fólks, þá aðallega trans kvenna í kvennaíþróttum, hafa verið mikið í umræðunni undanfarin ár. Þeir sem andvígir eru þátttöku þeirra bera helst þau rök fyrir sig að trans konur hafi líkamlega yfirburði fram yfir aðrar konur.

Nokkur íþróttasambönd, til dæmis alþjóða frjálsíþróttasambandið og enska knattspyrnusambandið, hafa bannað trans konum að taka þátt í kvennakeppnum.

Fjölmargt íþróttafólk hefur mótmælt því og bent á rannsóknir sem sýna fram á að trans konur hafi ekki líkamlega yfirburði fram yfir aðrar konur. Í Bandaríkjunum skrifuðu til dæmis margar þekktar íþróttastjörnur undir yfirlýsingu þar sem hvatt var til þess að banna trans konum ekki að keppa.


Tengdar fréttir

Trans konur fá ekki að keppa og Thomas svipt metunum

Stjórnendur University of Pennsylvania í Bandaríkjunum greindu frá því í gær að þeir hefðu komist að samkomulagi við stjórnvöld um að takmarka þátttöku trans kvenna í íþróttum.

Trump, trans og eitt titrandi smáblóm…

Alveg eins langt og mitt minni nær, þá man ég eftir því að almennt hneykslaðist fólk á þeim kynslóðum fólks sem stóð hjá og gerði ekki neitt á meðan Nasistar tóku völdin í Þýskalandi á þriðja áratug síðustu aldar og hneykslaðist enn meira á aðgerðaleysi stjórnvalda í öðrum löndum vegna uppgangs nasisma og fasisma víða í Evrópu, sérstaklega þó í Þýskalandi og Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×