Neytendur

Enginn bragur af verð­hækkunum Icelandair

Bjarki Sigurðsson skrifar
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Vísir/Einar

Formaður Neytendasamtakanna segir engan brag af verðhækkunum hjá Icelandair í kjölfar gjaldþrots Play. Þrátt fyrir mikið framboð af flugferðum til og frá Íslands hafa ferðaskrifstofur lent í vandræðum með endurskipulagningu ferða.

Miðað við samtöl fréttastofu við stóra aðila innan ferðamannageirans hefur gjaldþrot Play haft minni áhrif á stærri fyrirtæki en búist var við. Lítið er um að stærri hópar afbóki eða fresti ferðum til landsins, þó dæmi séu um það. Fréttastofa hefur þó heyrt af fjölda einstaklinga og minni hópa sem gjaldþrotið hefur áhrif á. Jólaferðir til Spánar sem eru tímabundið á ís og fleira.

Samkvæmt Neytendalögum ber ferðaskrifstofum að aðstoða þá sem kaupa pakkaferðir við að komast á áfangastað. Neytendasamtökunum hefur borist fjöldi ábendinga sem sýna að stofurnar hafa lent í smá brasi.

„Við höfum orðið vör við það að það eru ferðaskrifstofur sem benda farþegum sínum á að reyna að redda sér sjálfum flugferðum. Með misjafnri útkomu. Það er oft á tíðum erfitt að finna beint flug á þann stað sem menn ætluðu á upprunalega, þannig þetta er flókin staða,“ segir Breki.

Þrátt fyrir að Play skilji eftir gat á markaðinum, er enn fjöldi flugfélaga sem flýgur til og frá Íslandi. Samkvæmt Isavia eru 25 flugfélög með áætlunarflug til Íslands einhvern hluta ársins. Taka ber fram að hluti býður eingöngu upp á flug á ákveðnum tímum ársins.

Kort sem sýnir löndin sem Íslendingar geta ferðast til með beinu flugi. Athugið að staðsetningarnar á kortinu sýna ekki hvar borgirnar sem flogið er til eru. Tölurnar tákna fjölda flugfélaga sem fljúga til hvaða lands. Vísir/Sara

Talning fréttastofu sýnir að félögin 25 fljúgi til 51 borgar í 25 löndum. Gert var ráð fyrir að Play yrði með átta prósent markaðshlutdeild síðustu þrjá mánuði ársins, áður en félagið fór í þrot. Það er því úr nægu að velja fyrir Íslendinga á leið erlendis.

Hér má sjá merki flugfélaganna 25 sem fljúga til og frá Íslandi.Vísir/Sara

Það vakti þó athygli að skömmu eftir fall Play hækkaði sætisverð hjá Icelandair töluvert. Flugfélög nota alla jafna kerfi sem kallast „Dynamic Pricing“ eða kvikverðlagning, sem miðar að því að verð breytist mjög hratt eftir eftirspurn, árstíma, framboði og fleiru.

„Hún er ekkert náttúrulögmál. Það á ekkert endilega alltaf við að beita henni, sér í lagi ekki þegar eitthvað svona kemur upp á. Þegar fólk er á flæðiskeri statt að hækka þá verð á flugmiðum upp úr öllu valdi. Það finnst mér ekki flott,“ segir Breki. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×