Viðskipti erlent

AMD upp um fjórðung eftir risasamning við OpenAI

Samúel Karl Ólason skrifar
Sam Altman er einn af stofnendum OpenAI og forstjóri fyrirtækisins. Hann hefur kvartað undan skorti á reiknigetu fyrir ChatGPT, vinsælustu gervigreind heims.
Sam Altman er einn af stofnendum OpenAI og forstjóri fyrirtækisins. Hann hefur kvartað undan skorti á reiknigetu fyrir ChatGPT, vinsælustu gervigreind heims. AP/Jose Luis Magana

Hlutabréf í tæknifyrirtækinu Advanced Micro Devices eða AMD hafa hækkað um 23,71 prósent í dag eftir að tilkynnt var að fyrirtækið hefði gert risa samning við OpenAI. Gervigreindarfyrirtækið er hvað þekktast fyrir að þróa ChatGPT mállíkanið en samningurinn felur í sér langtímasamstarf fyrirtækjanna.

AMD mun sjá OpenAI fyrir miklu magni skjáskorta, sem þykja mjög hentug í gagnaverin sem keyra mállíkön, og öðrum tölvuflögum. Þetta mun OpenAI greiða fyrir mikla peninga en OpenAI gæti þar að auki fengið nánast gefins tíu prósenta hlut í AMD á samningstímabilinu.

Með þessu vilja forsvarsmenn OpenAI halda áfram að þróa ChatGPT og bæta getu gervigreindarinnar. Forsvarsmenn AMD vilja tengja fyrirtæki þeirra við OpenAI og í senn tryggja sér viðskiptavin til langs tíma.

Greg Brockman, einn af stjórnendum fyrirtækisins, sagði í samtali við CNBC að samningurinn væri nauðsynlegur. OpenAI hefði um nokkuð skeið skort meiri reiknigetu og sá skortur hefði þegar komið niður á ChatGPT.

Forsvarsmenn OpenAI hafa sagt að samningurinn hljóði upp á milljarða dala en þeir vilja ekki segja nákvæmlega hve mikið. Í frétt Wall Street Journal segir að samningurinn gildi til fimm ára og hljóði upp á tugi milljarða dala.

Miklar vendingar á markaði tölvuflaga

OpenAI er stærsta gervigreindarfyrirtæki heims og hefur hingað til að mestu átt í viðskiptum við fyrirtækið Nvidia þegar kemur að tölvuflögum fyrir gagnaver. Fyrir tæpum tveimur vikum var opinberaður um hundrað milljarða dala samningur milli OpenAI og Nvidia en samkvæmt því samkomulagi mun Nvidia eignast hlut í gervigreindarfyrirtækinu.

Nvidia er lang stærsta fyrirtæki heims þegar kemur að þróun skjákorta og sambærilegra tölvuflaga. Þróun gervigreindar á undanförnum árum hefur gert fyrirtækið það verðmætasta í heimi en virði hlutabréfa þess lækkaði um eitt prósent í dag.

Í frétt CNBC segir að samningurinn við AMD muni líklega létta á þrýstingi sem þróun gervigreindar hefur valdið á markaði skjákorta.

Þá eiga forsvarsmenn OpenAi einnig í viðræðum við forsvarsmenn Broadcom um þróun búnaðar til að keyra næstu kynslóðir gervigreinda.

Markaðurinn hefur tekið nokkrum breytingum að undanförnu en fyrirtæki eins og Google og Amazon hafa þróað eigin flögur fyrir gervigreind og eru byrjuð að nota þær fyrir eigin mállíkön og einnig selja þær. Þá segir í frétt New York Times að þó nokkur sprotafyrirtæki sem framleiði tölvuflögur hafi stungið upp kollinum.


Tengdar fréttir

Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind

Dósent í tölvunarfræði segist vita um fjögur tilfelli á síðustu þremur árum þar sem sjálfsvíg hafa orðið eftir samtal við gervigreind. Hann segir gervigreind oft á villigötum í lengri samtölum og ekki sé hægt að hafa fulla stjórn á henni.

„Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga

Vísindamenn lýsa áhyggjum af því að gervigreind gæti ýtt undir eða valdið geðrofi og sjálfsvígshugsunum hjá notendum. Þeir benda á að risamállíkön spegli oft skoðanir notenda sem kunni að ýta undir ranghugmyndir. Dæmi eru um að spjallmenni sannfæri notendur um að gervigreindin sé meðvituð eða að notandinn sé guðleg vera.

Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni

Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins OpenAI, sem þróar mállíkanið ChatGPT, hafa hætt við ætlanir um umfangsmiklar breytingar á rekstri fyrirtækisins. Til stóð að reka fyrirtækið í hagnaðarskyni í framtíðinni en nú hefur verið tekin sú ákvörðun að breyta ekki um stefnu og verður fyrirtækinu áfram stýrt af óhagnaðardrifinni stjórn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×