Strava stefnir Garmin Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. október 2025 09:38 Strava smáforritið hefur um árabil verið aðgengilegt í Garmin tækjum. Jakub Porzycki/Getty Images Bandaríska íþrótta-og tæknifyrirtækið Strava hefur stefnt bandaríska íþrótta-og tæknifyrirtækinu Garmin sem lengi hefur verið samstarfsaðili þess og vill með því koma í veg fyrir að fyrirtækið selji flestar af nýjustu líkamsræktar-og hjólreiðagræjum sínum.
Strava hefur framleitt hugbúnað um árabil sem flestir kannast við í samnefndu smáforriti fyrir snjallsíma sem gerir íþróttamönnum kleyft að skrásetja æfingar sínar. Garmin er svo eitt af þekktustu nöfnunum í framleiðslu á líkamsræktargræjum líkt og hlaupaúr. Í umfjöllun Verge kemur fram að málshöfðunin hafi verið lögð fram í héraðsdómi í Colorado þann 30. september og halda forsvarsmenn Strava því fram að kollegar sínir hjá Garmin hafi brotið samning milli fyrirtækjanna. Garmin hafi brotið á einkaleyfum Strava á svokallaðri „segments“ tækni, það er leiðarkafla þar sem íþróttafólk getur borið saman árangurstíma, auk hitakorts sem sýni vinsæl svæði fyrir hreyfingu. Strava krefst varanlegs lögbanns til að koma í veg fyrir að Garmin selji eða bjóði upp á vörur sem innihalda þessa eiginleika. Fyrirtækið segir að fjárhagslegar bætur einur og sér séu ófullnægjandi. Brotin segja Strava menn að nái til Garmin Connect smáforritsins og meirihluta tækja frá Garmin, þar á meðal Edge-hjólatölva og Forerunner, Fenix og Epix hlaupaúra. Strava sótti um einkaleyfi fyrir „segments“ árið 2011 og fékk leyfið 2015. Garmin ýtti úr vör smáforriti sínu árið 2014 sem innihélt sambærilega tækni. Fyrirtækin skrifuðu svo árið 2015 undir víðtækan samstarfssamning sem færði tækni Strava inn í græjur Garmin. Hafa átt í áralöngu samstarfi Þess er getið í umfjöllun The Verge að málshöfðunin komi á óvart sökum víðtæks samstarfs fyrirtækjanna í fortíðinni. Þess hafi verið getið í skýrslum Strava að Forerunner hlaupaúr Garmin hafi verið eitt það vinsælasta hjá notendum Strava. Forsvarsmenn Strava segja hinsvegar að forsvarsmenn Garmin hafi nýtt sér samstarfið á óheiðarlegan hátt. „Garmin fékk takmarkað leyfi frá Strava til þess að innleiða Strava Segments í tækin sín. Þeir nýttu sér þennan aðgang hinsvegar til þess að rannsaka þessa eiginleika vandlega, afrita þá nákvæmlega og gefa þá síðan út sem Garmin-eiginleika. Fyrir vikið hefur Strava höfðað mál gegn Garmin til að vernda einkaleyfisvarðar uppfinningar sínar,“ hefur miðillinn eftir Brian Bell talsmanni Strava. „Garmin hafnaði ítrekuðum tilraunum Strava til að leysa úr broti Garmin með óformlegum hætti og neyddi þannig Strava til að taka afstöðu í málinu og höfða mál. Við ætlum ekki að grípa til neinna aðgerða sem myndu trufla möguleika Garmin-notenda á að samstilla gögn sín við Strava og vonum að Garmin meti sameiginlega notendur okkar á sama hátt.“
Tækni Bandaríkin Hlaup Mest lesið Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Neytendur Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Neytendur eigi meira inni Neytendur Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Neytendur Fleiri fréttir Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Messenger-forritið heyrir sögunni til Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Sjá meira