Fyrsta konan til að verða forsætisráðherra Japans Atli Ísleifsson skrifar 21. október 2025 06:24 Sanae Takaichi tilheyrir harðlínuarmi flokksins en hún var náinn bandamaður fyrrverandi forsætisráðherrans Shinzo Abe. AP Japanska þingið samþykkti í dag hina 64 ára Sanae Takaichi sem nýjan forsætisráðherra landsins, en hún er fyrsta konan til að gegna embættinu.
Takaichi er íhaldsmaður og þekkt sem „Járnfrú Japans“, enda segist hún sjálf mikill aðdáandi Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sem var einmitt þekkt sem Járnfrúin. Hún mun formlega taka við embættinu þegar hún gengur á fund Japanskeisara síðar í dag. Þetta er þriðja tilraun hennar til að verða leiðtogi landsins og fjórði forsætisráðherra Japans á fimm árum. Hún var kjörin formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins fyrr í mánuðinum, en flokkurinn hefur stýrt Japan nær óslitið frá stofnun hans árið 1955, ef frá er talið 1993 til 1996 og svo aftur frá 2009 til 2012. Takaichi tilheyrir harðlínuarmi flokksins en hún var náinn bandamaður fyrrverandi forsætisráðherrans Shinzo Abe. Hún hefur setið á þingi frá 1993 til 2003 og aftur frá 2005, auk þess að gegna fjölda ráðherraembætta í stjórnartíð forsætisráðherranna Shinzo Abe og Fumio Kishida. Takaichi bíður þess nú að takast á við fjölda úrlausnarefna sem Japanir glíma við, þar með talið efnahagsmálin, brösótt samskipti Japans og Bandaríkjanna og að sameina flokkinn sem hefur þurft að glíma við fjölda hneykslismála og innri deilna á síðustu árum. Takaichi var kjörin formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins eftir að Shigeru Ishiba tilkynnti um afsögn sína á dögunum. Hann hafði gegnt formennsku og forsætisráðherraembættinu í rúmt ár.
Japan Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira