Innlent

Starfs­menn tveggja sorphirðufyrirtækja grunaðir um sam­ráð

Lovísa Arnardóttir skrifar
Annað fyrirtækið sem leitað var hjá er Terra.
Annað fyrirtækið sem leitað var hjá er Terra. Terra

Embætti héraðssaksóknara framkvæmdi í dag húsleitir og aðrar aðgerðir til þess að afla gagna og upplýsinga vegna ætlaðra brota tveggja fyrirtækja á markaði fyrir úrgangsþjónustu á samkeppnislögum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Annað fyrirtækið er Terra eins og kom fram í tilkynningu frá fyrirtækinu fyrr í dag.

Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins segir að rannsóknin beinist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og að hún grundvallist á kæru Samkeppniseftirlitsins.

Þá kemur fram að samhliða rannsókn embættis héraðssaksóknara á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hafi Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á banni 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 við samráði keppinauta um meðal annars gerð tilboða í útboðum og skiptingu markaða.

Framangreindar aðgerðir embættis héraðssaksóknara voru framkvæmdar í samvinnu við Samkeppniseftirlitið, en ákvæði 42. gr. samkeppnislaga heimila samvinnu og miðlun upplýsinga milli embættis héraðssaksóknara og Samkeppniseftirlitsins.

Í tilkynningu segir að Samkeppniseftirlitið muni ekki veita frekari upplýsingar á þessu stigi. Tilkynningin er aðgengileg hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×