Úthaf efnahagsmála – fjárlög 2026 Halla Hrund Logadóttir skrifar 11. desember 2025 07:52 Með ákveðinni einföldun má líkja efnahagsmálum þjóða við siglingu á úthafi þar sem aðstæður geta breyst hratt. Nú er aukinn mótvindur, vaxandi ölduhæð og óvissan um þróun mála meiri en vænlegt er. Hagvöxtur verður minni en vonast var til, helstu útflutningsgreinar hafa upplifað mótbyr og Seðlabankinn spáir áframhaldandi áskorunum í efnahagslífi þjóðarinnar. Á slíkum tímum reynir sérstaklega á forystu ríkisstjórnar og Alþingis að sýna samstöðu, festu og raunsæi. Við höfum áður siglt í gegnum margs kyns öldurót og það gerum við áfram með árvekni og ábyrgum aðgerðum. Jákvæð skref í fjárlagafrumvarpinu Heilt yfir er jákvætt að ríkisstjórn Íslands haldi fast við markmiðið um jafnvægi í ríkisfjármálum árið 2027 í fjárlögum. Það markmið skiptir máli fyrir stöðugleika og trúverðugleika ríkisfjármála. Þá eru auknar fjárfestingar í lykilinnviðum fagnaðarefni, ekki síst í heilbrigðiskerfi s.s. í málefnum fólks með fíknivanda og í samgöngum sem snerta landið í heild. Þetta eru allt dæmi um mikilvægar forsendur fyrir öflugu og sanngjarnara samfélagi sem hrósa má fyrir. Þrátt fyrir þetta eru ýmsar brotalamir í frumvarpi til fjárlaga. Hér eru fimm dæmi um hvar gera þarf betur. 1. Þörf er á átaki og skýrari markmiðum í menntamálum Staða menntamála er ein helsta áskorun þjóðarinnar. Árangur nemenda er langt frá því að vera ásættanlegur og þróunin á lestrarfærni bendir til kerfislægs vanda. Ef ekkert verður af hálfu ríkisins blasir við hrun í færni, tækifærum og þátttöku ungs fólks í samfélaginu á næstu árum. Þetta varðar ekki aðeins íslenskukunnáttu heldur verðmætasköpun, atvinnulíf og framtíðarstöðu íslenskunnar sjálfrar. Markmið fjárlagafrumvarpsins um menntamál bera þess ekki nægilega skýr merki að um neyðarástand sé um að ræða. Þess vegna þarf sameiginlegt menntunarátak þjóðarinnar. Við þurfum að hraða heildarendurskoðun á skipulagi kerfisins, skýra gæðaramma, samræmt ytra mat og gagnadrifnar ákvarðanir. Það þarf líka að auka aga innan skólakerfisins og virðingu fyrir námi í gegnum samvinnu heimilis og skóla. Við þurfum framtíðarsýn með skýrum mælanlegum markmiðum sem nær yfir leik-, grunn- og framhaldsskóla og tryggir öllum börnum menntun sem stenst bestu alþjóðlegar kröfur. Nú þarf metnað, hugrekki og viljastyrk til breytinga. Ekki orð á blaði. 2. Auka þarf sókn í nýsköpun og efla aðgang að alþjóðlegum mörkuðum Það blasir einnig við að sókn í nýsköpun og atvinnuþróun er of veikburða miðað við aðstæður. Hagkerfið er að kólna en fjárfestingar í nýjum tækifærum hafa ekki fylgt eftir. Landbúnaður, svo dæmi sé tekið, þarf aukna nýliðun og sókn, ekki hindranir. Fæðuöryggi er hluti af þjóðaröryggi og á að endurspeglast í auknum fjárheimildum til öryggismála. Þá þarf að styrkja innviði nýsköpunar um allt land. Sprotafyrirtæki og frumkvöðlar eru lykillinn að því að fá meira virði fyrir auðlindir, efla hugvit og móta tækni. Þess vegna leggjum við til aukna fjárfestingu í nýsköpunarverkefnum. Jafnframt leggjum við til átak í alþjóðlegri markaðssetningu fjölbreyttrar íslenskrar framleiðslu; allt frá íslenskum matvælum yfir í hugbúnað og hönnun. Sama á við um ferðaþjónustuna sem er í krefjandi alþjóðlegri samkeppni. Sóknarfæri Íslands eru til staðar en þau þurfa aukið eldsneyti og kraft. Með því byggjum við fleiri stoðir undir atvinnulífið sem núverandi áskoranir í iðnaði sýna svo glöggt að þörf er á. 3. Varasjóður ríkisins þarf að vera raunhæfur Almennur varasjóður ríkisins á að vera öryggisventill þegar áföll dynja yfir. Í fjárlögum er hann aðeins 1% af heildarútgjöldum sem er lögbundið lágmark. Það er einfaldlega ekki nægilegt. Forsendur ársins 2026 eru brothættar og reynslan sýnir að óvænt áföll eru regla frekar en undantekning hérlendis. Ef varasjóðurinn er of rýr er fjárlagafrumvarpið að öllum líkindum of bjartsýnt. Þá næst jafnvægi aðeins ef allt gengur upp og það gerist sjaldan. Við þurfum raunhæf fjárlög, borð fyrir báru og meiri varfærni í áætlanagerð. 4. Tungumálið og menningin eru verðmæti sem þarf að hlúa betur að Við verðum einnig að horfast í augu við að við fjárfestum ekki nægilega í mikilvægustu innviðum samfélagsins; tungumálinu sem tengir okkur saman og varðveitir að auki bæði menningu okkar og sögu. Án skýrra og róttækra aðgerða heldur staða íslenskunnar áfram að versna. Menningarleg sjálfsmynd okkar, samheldni þjóðarinnar og framtíðarmöguleikar ungs fólks eru í húfi. Hér þarf að fjárfesta mun meira, skýra umgjörð og setja mælanleg markmið í framkvæmd, eins konar TOEFL-próf íslenskunnar. Fjármagn og aðgerðir skila litlu ef ekki er hægt að meta hvernig tekst til. 5. Að standa vörð um landið er skynsamleg fjárfesting Þá er kominn tími til að endurmeta hvernig við hugsum um landið sjálft. Eignarhald auðlinda skiptir máli. Nýting lands og auðlinda er mikilvægur grunnur fjölbreyttrar verðmætasköpunar á Íslandi en er oft rædd með áherslu á hraða og skammtímaverðmæti. Verndun býr líka til verðmæti og oftar en ekki til lengri tíma. Sjónarmið þess að fara vel með hálendið þurfa ekki endilega að felast í fórn heldur geta búið til langtímafjárfestingu. Við þurfum að vera opin fyrir því samtali. Ósnortin víðerni eru eins konar náttúruauðlindasjóður sem hækkar í virði eftir því sem þau verða fágætari og eykur sérstöðu Íslands til framtíðar. Á sama tíma styrkir varfærin innviðauppbygging sérstöðu Íslands í ferðaþjónustu. Hér má enn upplifa eina raunverulega ósnortna hálendisupplifun Evrópu. Slík sérstaða er mikils virði bæði beint og óbeint. Hugsun um verndun náttúru og ábyrga nýtingu með langtímasýn á að vera leiðarljós í allri okkar áætlunargerð, samhliða öflugri uppbyggingu grunninnviða á borð við heilbrigðisþjónustu, menntun og samgöngur. Styrkur Íslands eykst með þessum áherslum Þjóð sem menntar sig vel og fjölgar eggjum í körfu hagkerfisins þegar á móti blæs með áherslu á nýsköpun og sókn atvinnuvega eflir seiglu sína og kraft. Þjóð sem sýnir ráðdeild á óvissutímum á meiri möguleika ef það gefur á bátinn. Þjóð sem ver náttúru, tungu og menningu hefur skýran áttavita um hver eru hennar mestu verðmæti. Með slíkum fjárfestingum hefur Ísland meiri möguleika óháð því hvort við siglum á lygnum sjó eða í ölduhæð úthafsins. Högum fjárlögum á þá vegu. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Hrund Logadóttir Fjárlagafrumvarp 2026 Mest lesið Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Sjá meira
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun