Skynjar stress hjá Arsenal Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. desember 2025 09:02 Arsenal mætir Aston Villa í stórleik á Emirates annað kvöld. getty/Mark Leech Sérfræðingar Sunnudagsmessunnar veltu því fyrir sér hvort pressan væri farin að segja til sín hjá Arsenal, toppliði ensku úrvalsdeildarinnar.
Arsenal vann 2-1 sigur á Brighton á laugardaginn. Liðið þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum sem var sá þriðji hjá því í deildinni í röð. Kjartan Henry Finnbogason og Haukur Harðarson ræddu stöðu Arsenal í Sunnudagsmessunni í gær. „Þeir eru verðskuldað á toppnum en eins og eins og við vorum að sjá hafa þessir leikir og þessi frammistaða ekki beint verið sannfærandi upp á síðkastið. Það hefur legið á þeim. Þetta var leikur tveggja hálfleikja, sem er leiðinleg klisja, en orkan í Arsenal-liðinu hefur aðeins gefið eftir í undanförnum leikjum,“ sagði Kjartan Henry. Haukur beindi athyglinni að töfum Arsenal undir lok leiksins gegn Brighton. „[Piero] Hincapié fékk gult spjald fyrir leiktöf og þarna fer Martinelli út við hornfána. Það er 87:50 á klukkunni. Þú ert á heimavelli, 2-1 yfir, og átt bara að fara að sækja þriðja markið. Auðvitað má líka segja að þetta sé skynsamlegt,“ sagði Haukur. Klippa: Messan - umræða um tafir Arsenal „Þetta er, fyrir mér, smá áhyggjuefni. Ég túlka þetta smá eins og tímabil Arsenal hafa verið síðustu ár. Þið voruð með skilti um daginn sem sýndi stöðu Arsenal um áramót og þar var Manchester City oftar en ekki í 1. sæti þegar tímabilinu lauk og ég er hræddur um að það verði aftur svoleiðis í ár.“ Arsenal hefur fjórum sinnum verið á toppi ensku úrvalsdeildarinnar um jólin en í öll þau skipti varð liðið ekki meistari. Arsenal er með tveggja stiga forskot á City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur Arsenal er gegn Aston Villa, sem hefur unnið ellefu leiki í röð, annað kvöld. Umræðuna úr Messunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Arsenal FC Messan Tengdar fréttir Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, lýsti markvörslu Davids Raya í leiknum gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær sem stórkostlegri. 28. desember 2025 11:22 Aldrei spilað þarna en sagði strax já Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var hæstánægður með hugarfar Declan Rice og annarra leikmanna sinna í 2-1 sigrinum gegn Brighton í dag og sagði þá hafa verðskuldað mun stærri sigur. 27. desember 2025 20:16 Arsenal aftur á toppinn Arsenal vann 2-1 sigur á Brighton & Hove Albion á Emirates-vellinum í ensku úrvalsdeildinni. Með sigrinum endurheimtir liðið toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar. 27. desember 2025 16:55 Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira
Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, lýsti markvörslu Davids Raya í leiknum gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær sem stórkostlegri. 28. desember 2025 11:22
Aldrei spilað þarna en sagði strax já Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var hæstánægður með hugarfar Declan Rice og annarra leikmanna sinna í 2-1 sigrinum gegn Brighton í dag og sagði þá hafa verðskuldað mun stærri sigur. 27. desember 2025 20:16
Arsenal aftur á toppinn Arsenal vann 2-1 sigur á Brighton & Hove Albion á Emirates-vellinum í ensku úrvalsdeildinni. Með sigrinum endurheimtir liðið toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar. 27. desember 2025 16:55