Fækkar ráðlögðum bóluefnum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. janúar 2026 23:05 Robert F Kennedy yngri er heilbrigðisráðherra. EPA Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna, CDC, hefur fækkað ráðlögðum bólusetningum barna úr sautján í tíu.
Á uppfærðum lista yfir bólusetningar sem eru ráðlagðar fyrir börn má finna bóluefni gegn mænusótt og mislingum en settur er fyrirvari á bóluefni gegn lifrarbólgu A og B og Covid-19. Slík bóluefni má gefa eftir samráð með heilbrigðisstarfsfólki samkvæmt NYT. Einnig verður einungis mælt með bólusetningu við RS-veirunni fyrir börn í áhættuhópi. Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, hefur opinberlega efast um virkni bóluefna og krafðist til að mynda að bóluefni gegn kórónuveirunni yrði tekið úr umferð á tímum heimsfaraldursins. Endurskoðun listans yfir ráðlögð bóluefni er hluti af umfangsmikilli stefnubreytingu ráðherrans. „Við erum að samræma bólusetningaráætlun barna í Bandaríkjunum við alþjóðlega samstöðu um leið og við aukum gagnsæi og upplýst samþykki,“ er haft eftir Kennedy. Að sögn Kennedy er verið að samræma tilmæli Bandaríkjanna við tilmæli annarra þróaðra ríkja, á við Japan, Danmörku og Þýskaland. Hann vitnar í skýrslu sem segir að tilmæli Bandaríkjanna séu ansi ólík öðrum löndum, en í frétt NYT er bent á að tilmælin hafi áður verið mjög lík þeim í Kanada, Bretlandi og Ástralíu. Nýju tilmælin séu ansi lík þeim sem eru í gildi í Danmörku. Áður fyrr sá ákveðin ráðgjafarnefnd um tilmæli CDC um bólusetningar. „Skyndileg breyting á skipulagi bóluefna bandarískra barna er áhyggjuefni, ónauðsynleg og setur heilsu bandarískra barna í hættu,“ segir Helen Chu, læknir og fyrrverandi meðlimur í ráðgjafarnefnd alríkisstjórnarinnar um bóluefni. Það er undir hverju ríki komið að ákveða hvaða bóluefni eru nauðsynleg fyrir börn en slíkar tilskipanir verða fyrir miklum áhrifum frá tilmælum CDC.
Bólusetningar Heilbrigðismál Bandaríkin Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira