Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. janúar 2026 14:29 Billy Long til vinstri við hlið Donald Trump á góðri stundu árið 2019. EPA/MICHAEL REYNOLDS Væntanlegur sendiherra Bandaríkjanna hér á landi og fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings grínaðist með það við þingmenn í gær að Ísland yrði 52. ríkið og að hann yrði ríkisstjóri. Í þinginu eru nú stíf fundarhöld um fjárlög þar sem menn róa öllum árum að því að koma í veg fyrir aðra lokun ríkisstofnana.
Það er bandaríski vefmiðillinn Politico sem greinir frá brandara fyrrverandi þingmannsins og skattstjóra Billy Long. Greint var frá því í ágúst í fyrra að Bandaríkjastjórn hefði tilnefnt Long en enn virðist þó langur vegur í það að hann verði skipaður í sendiherrastöðuna. Öldungadeild þarf að taka tilnefninguna fyrir og í þinginu er málalistinn langur og ekki útséð um það hvenær skipunin verður tekin fyrir. Í umfjöllun Politico er lesendum boðið góðan daginn í fyrstu færslu í vakt þar sem fylgst er með stöðu mála á þinginu. Þar er vitnað til orða Long en líkt og lesendur Vísis vita flestir er mikill titringur í alþjóðamálum þessa dagana vegna yfirlýsinga Bandaríkjastjórnar um vilja þeirra til yfirráða yfir Grænlandi. „Við heyrðum að fyrrverandi þingmaðurinn Billy Long, sem Trump tilnefndi sem sendiherra á Íslandi, hafi grínast við þingmenn í gærkvöldi og sagt að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna og hann yrði ríkisstjóri,“ segir í fyrstu færslu Politico á þessum miðvikudagsmorgni. Long er íhaldssamur repúblikani sem tók fyrst sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir heimaríki sitt Missouri árið 2011. Þar sat hann í sex kjörtímabil til 2023. Áður hafði hann meðal annars unnið sem uppboðshaldari og fasteignasali á heimaslóðum. Hinn 69 ára gamli verðandi sendiherra var skattstjóri Bandaríkjanna í innan við tvo mánuði, skemur en nokkur annar í sögu stofnunarinnar. Dagana áður en Long var sparkað frá skattinum hafði slegið í brýnu á milli stofnunarinnar og Hvíta hússins vegna upplýsinga sem það falaðist eftir til þess að hafa hendur í hári fólks sem dvelur ólöglega í Bandaríkjunum. Hafði Long sagt að stofnun hans ætlaði ekki að afhenda persónuupplýsingar skattgreiðenda umfram samkomulag við heimavarnarstofnun Bandaríkjanna. Aldrei lá þó fyrir hvort þrætan hafi orðið til þess að hann var settur af. Long er einkar litríkur karakter. Það sást meðal annars í gamansamri færslu hans á samfélagsmiðlum eftir að hann var tilnefndur sendiherra á Íslandi. Þar gerði hann að því skóna í gríni að forsetinn hefði misskilið ósk hans um að fá að ganga til liðs við ICE, innflytjendastofnun Bandaríkjanna, og sent hann til Íslands í staðinn.
Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Sendiráð á Íslandi Tengdar fréttir Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Utanríkisráðherrar Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna, auk varaforseta Bandaríkjanna, munu funda í Washington DC í dag. Þar stendur til að ræða málefni Grænlands en Bandaríkjamenn hafa ekki verið feimnir við að segja að þær girnist Grænland. Donald Trump, forseti, hefur sagt að Bandaríkin muni eignast Grænland með góðu eða illu. 14. janúar 2026 11:40 Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Innlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Innlent Fleiri fréttir Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni 32 látnir eftir að krani féll á lest í Taílandi Rannsaka ásakanir á hendur Iglesias Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Tveir látnir eftir árekstur strætisvagna Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Trump segir Nielsen í vondum málum Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Trump sýndi verkamanni puttann Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur „Við veljum Danmörku“ Að minnsta kosti þrjú þúsund látnir í Íran Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna Borgin ber enga ábyrgð í Gufunesbruna og stjórnarmaður í Truenorth segir tjónið óbætanlegt Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Kynnir sér möguleika varðandi Íran og leggur toll á vinaríki klerkastjórnarinnar Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Þvert nei Grænlendinga við yfirtöku Bandaríkjanna Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Sjá meira
Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Utanríkisráðherrar Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna, auk varaforseta Bandaríkjanna, munu funda í Washington DC í dag. Þar stendur til að ræða málefni Grænlands en Bandaríkjamenn hafa ekki verið feimnir við að segja að þær girnist Grænland. Donald Trump, forseti, hefur sagt að Bandaríkin muni eignast Grænland með góðu eða illu. 14. janúar 2026 11:40