Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Árni Sæberg skrifar 19. janúar 2026 16:28 Heiðar Guðjónsson er nýr stjórnarformaður Íslandsbanka. Vísir/Árni Heiðar Guðjónsson hefur verið kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka. Tilnefninganefnd bankans tilnefndi hann sem stjórnarformann en hann leiddi hóp fjárfesta í bankanum sem fóru fram á að hluthafafundur yrði haldinn. Enginn annar gaf kost á sér og því var Heiðar sjálfkjörinn.
Þetta var niðurstaða hluthafafundar Íslandsbanka, sem hófst klukkan 16 á Hilton Reykjavík Nordica. Á dagskrá fundarins voru ávarp stjórnarformanns, kosning stjórnar, varastjórnar bankans og formanns stjórnar og önnur mál. Tvö ný í stjórn Tilnefningarnefnd bankans tilnefndi eftirfarandi í stjórn bankans þann 14. janúar: Haukur Örn Birgisson Heiðar Guðjónsson Helga Hlín Hákonardóttir Margrét Pétursdóttir Stefán Pétursson Stefán Sigurðsson Valgerður Hrund Skúladóttir „Tilnefningarnefnd leggur jafnframt til að Heiðar Guðjónsson verði kjörinn formaður stjórnar,“ sagði í tilkynningu nefndarinnar. Tilnefningarnefndin lagði þannig til að Heiðar og Margrét kæmu ný inn í stjórnina fyrir þau Lindu Jónsdóttur, fráfarandi stjórnarformann, og Agnar Tómas Möller. Linda greindi frá því nýverið að hún myndi ekki sækjast eftir endurkjöri í stjórn. Enginn gaf kost á sér til stjórnarsetu fyrir utan þau sem tilnefnd voru og stjórnin var því sjálfkjörin. Herdís Gunnarsdóttir og Magnús E. Björnsson voru sjálfkjörin í varastjórn bankans. „Hvaða sirkus er þetta?“ Heiðar Guðjónsson fjárfestir staðfesti á dögunum háværan orðróm um að hann stefndi á framboð til stjórnar Íslandsbanka. Hann sagðist hafa fundist vanta tilfinnanlega rödd hluthafa inn í stjórn bankans og tók sem dæmi síðasta hluthafafund, þar sem aðeins einn hluthafi tók til máls. „Hvaða sirkus er þetta?“ sagðist hann hafa spurt sig á fundinum. Greint var frá því þann 8. desember að hópur hluthafa í Íslandsbanka hefði krafist hluthafafundar og stjórnarkjörs í krafti rúmlega fimm prósenta eignarhlutar í bankanum. Daginn eftir greindi Innherji frá því að Heiðar færi fyrir hópnum og að hann freistaði þess að komast í stjórn bankans.
Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Vistaskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira