Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2026 14:32 Virgil van Dijk hefur áhyggjur af því hvernig yngri leikmenn takist á við harða gagnrýni frá fyrrum leikmönnum í fótboltaspjallaþáttum. EPA/ADAM VAUGHAN Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, hefur varað við því að skoðanir sérfræðinga og viðbrögð á samfélagsmiðlum geti haft áhrif á andlega heilsu yngri leikmanna. Hann hefur miklu meiri áhyggjur af næstu kynslóð frekar en sinni kynslóð.
Fyrrverandi leikmenn sem gerst hafa sérfræðingar bera ábyrgð gagnvart nýrri kynslóð fótboltamanna þegar þeir tjá sig um frammistöðu þeirra, segir Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool. Í samtali við Gary Neville á Sky Sports varaði varnarmaðurinn við því að skoðanir færu stundum yfir í að vera „smellibeita, að segja hluti til að ögra og án þess að hugsa um afleiðingarnar fyrir andlega líðan leikmanna“. Hefur áhyggjur af næstu kynslóð „Ég persónulega get tekist á við það en ég hef svolitlar áhyggjur af næstu kynslóð,“ sagði Van Dijk við Neville. "The ex-top players have a responsibility to the new generation." 💬 Virgil van Dijk opens up on the role of media in football and how it impacts players. pic.twitter.com/EWr5GAaDOz— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) February 6, 2026 Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Van Dijk tjáir sig um málið á þessu tímabili. Í nóvember sagði Hollendingurinn að það væri „löt gagnrýni“ þegar Wayne Rooney kenndi skorti á forystu um slakt gengi Liverpool. Hann nefndi ummælin aftur nokkrum dögum síðar þegar þeir tveir birtust við völlinn á Amazon Prime eftir 1-0 sigur Liverpool á Real Madrid í Meistaradeildinni. Skoðanir sérfræðinga komust einnig í sviðsljósið í síðasta mánuði þegar fyrrverandi miðjumenn Manchester United, Paul Scholes og Nicky Butt, létu falla ummæli um núverandi varnarmann United, Lisandro Martinez. Eins og „lítið smábarn“ Fyrir Manchester-slaginn á Old Trafford hélt Butt því fram að sóknarmaður City, Erling Haaland, myndi koma fram við Argentínumanninn Martinez eins og „lítið smábarn“, á meðan Scholes gaf í skyn að norski framherjinn myndi „kasta honum í netið“ eftir að hafa skorað. Martinez svaraði með því að segja að sérfræðingar „geti talað í sjónvarpinu“ en „enginn segir neitt“ við mann augliti til auglitis. „Mér finnst að fyrrverandi toppleikmenn beri ábyrgð gagnvart nýju kynslóðinni,“ sagði Van Dijk. Segja hluti til að ögra „Gagnrýni er algjörlega eðlileg og hluti af leiknum og mér finnst að það eigi að vera þannig áfram.“ „En stundum fer gagnrýni líka yfir í að vera smellibeita, að segja hluti til að ögra án þess að hugsa um afleiðingarnar fyrir andlega líðan leikmanna, og sérstaklega yngri kynslóðarinnar, sem er stöðugt á samfélagsmiðlum.“ „Þú getur sagt, ‚já, þú ættir ekki að vera á samfélagsmiðlum‘ – það er það sem ég hef nefnt [við þá] margoft,“ sagði Van Dijk. „Það er alltaf þetta með að þegar þú spilar góðan leik þá skoða yngri leikmenn allt jákvæða hrósið en þegar þú átt verri leik og verður fyrir einelti úti um allt á samfélagsmiðlum eða færð slæma gagnrýni þá getur það haft mikil áhrif á þig.“
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira