Erum við komin þangað að fyrirtækin hugsa um börnin okkar? Halldóra Björk Þórarinsdóttir og Freydís Aðalbjörnsdóttir skrifa 9. febrúar 2026 10:01 Eins og flestum er kunnugt um eru borgarstjórnakosningar á næsta leiti og þá fara allir flokkar á fullt að gefa loforð sem að ekki er hægt að efna þegar á hólminn er komið. Síðast þegar við vissum þá átti það að vera val foreldra hvort að þau myndu setja barnið sitt á leikskóla eða til dagforeldra. Helsta baráttumál flestra flokka eru eins og alltaf leikskólamálin og verða þau alltaf að einhverju hitamáli. Er þetta ekki bara orðið gott með að reyna að troða öllum börnum inn á leikskóla þegar þau eru rétt eins árs? Er verið að vinna í þvi að leggja niður dagforeldrakerfið? Núna keppast allir flokkar við það að lofa öllu fögru og alltaf er það sama loforðið hjá sumum flokkum, öll börn fá leikskólapláss en svo kemur að innritunardegi og þá hvað? Margir foreldar fá skell þar sem að barnið fær því miður ekki leikskólapláss og foreldrar voru ekkert búin að hugsa út í önnur úrræði þar sem að það var búið að lofa því að allir myndu fá leikskólapláss. Dagforeldar eru orðnir þreyttir á því að vera útskúfaðir af sumum flokkum hjá borginni og það er aldrei minnst á okkur þegar það er talað um að brúa bilið, samt fáum við að heyra það á öllum námskeiðsdögum hvað við skiptum borgina miklu máli og hvað við séum að bjarga borginni mikið með okkar vinnu. Það eru ekki öll börn sem að geta verið í stórum hópum og þá koma dagforeldrar sterkir inn. Hjá dagforeldrum fá þessir litlu einstaklingar alla þá ást og umhyggju sem að þau þurfa og ég tala nú ekki um að allur maturinn er eldaður frá grunni ekki aðkeyptur fjöldaframleiddur unnin matur sem hefur verið boðin út af borginni, og þarf aðeins að hita upp vegna sparnaðar. Einnig er Það alltaf sama manneskjan sem að tekur á móti barninu á morgnana sem að skiptir miklu máli fyrir börnin. Mikið af dagforeldrum hafa hreinlega gefist upp á þessari umræðu fyrir kosningar. Endalaus loforð sem að eru svikin og margir foreldrar lenda í veseni með daggæsluúrræði þar sem að þau treysta alltaf á þessi blessuðu loforð. Þessi umræða er orðin eins og rispuð plata og við sem að störfum sem dagforeldar erum langþreytt á því að vera þessi ósýnilegi hópur sem að margir frambjóðendur eru að reyna að losa sig við. Þegar að ég Halldóra eignaðist mitt fyrsta barn árið 2001 áttu öll börn að komast inn 18 mánaða, minn drengur var 31 mánaða. Í dag segir reglugerðin 18 mánaða þó svo svo að kosningaloforðin hljómi uppá 12 mánaða. Í allnokkur kjörtímabil var það stefna borgarinnar að koma öllum börnum 12 mánaða og eldri inná leikskóla. Markmiðið var að byggja og byggja fleiri leikskóla, einhverja leikskóla átti að stækka um 1-3 deildir. Vegna þessara orða hefur verið mikill flótti úr stéttinni, árið 2011 vorum við dagforeldrar í borginni um 250 en í dag erum við um það bil 70. Mikið hefur verið um lokanir leikskóla vegna myglu, börn hafa þurft að færa sig í önnur húsnæði, fleiri leikskólar hafa þurft að senda börn heim allt að 2 daga í viku vegna manneklu. Þessi loforð hafa ekki staðist sama hvað það hefur verið. Ekki má samt gleyma því að eftir marga fundi borgarinnar með félögum dagforeldra var unnið að þjónustusamning og hækkun niðurgreiðslu með börnum 18 mánaða og eldri á þessu kjörtímabili. Það er jú dýrt fyrir börn yngri en 18 mánaða og má þá ekki setja smá púður í það að lækka þann aldur sem hækkun niðurgreislu hefst. Arion banki hefur opnað daggæslu allt að 10 barna í húsnæðinu hjá sér í Borgartúni, eftir að hafa fengið leyfi hjá GEV, heilbrigiseftirliti og slökkviliðinu. Starfsmenn bankans eru þeir sem að geta sótt um í þessari daggæslu um leið og barnið verður 12 mánaða. Frábært að fyrirtæki aðstoði sitt fólk um daggæslu fyrir börnin sín svo að fólkið komist aftur í vinnu, en ætti ekki að þurfa að vera háð miklum kvöðum. Eitt að kommentum undir grein Hildar Björnsdóttur stakk okkur. Það er um hvort að það gæti verið kvöð að vera með daggæslu hjá vinnuveitandanum. Ég set það hér inn eins og það var skrifað af Sigurði Viktori “Það er vont ef starfsfólk er háð vinnuveitanda um ekki bara starf og laun, en einnig leikskóla barnanna sinna. Ef fólk skiptir um vinnu, þá þurfi börnin þess líka að skipta um leikskóla. Ef fólk segir t.d. frá slæmri framkomu yfirmanna, þá er það ekki bara að setja starfið sitt í hættu heldur einnig leikskólarými barnanna sinna. Helst þarf þetta að vera aðskilið.” Heyrst hefur að fleiri fyrirtæki séu að skoða þennan valmöguleika og jafnvel að opna leikskóla. Við sjáum ekki að það sé að fara að leysa allan leikskólavanda borgarinnar. Höfundar eru dagforeldrar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar