„Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Stefán Árni Pálsson skrifar 18. febrúar 2026 07:33 Ívar verður í hjarta Breiðabliks á næsta tímabili í Bestu-deildinni. Hann verður áfram í treyju númer 5. vísir/sigurjón Ívar Örn Árnason segir að það hafi verið gríðarlega erfið ákvörðun að yfirgefa KA-menn en samt sem áður tímabært, að takast á við nýja áskorun í faðmi Blika. Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur fest kaup á varnarmanninum. Ívar hefur leikið meira og minna allan sinn feril hjá KA en þessi 29 ára miðvörður og hefur gegnt fyrirliðastöðunni fyrir norðan síðustu tímabil.
Ívar er fimmti leikjahæsti leikmaður KA í efstu deild frá upphafi en hann leiddi Akureyrarliðið meðal annars til bikarmeistaratitils árið 2024 og átti stóran þátt í góðu Evrópugengi liðsins það sama ár. En af hverju Breiðablik? „Ég ákvað að ég þyrfti nýja áskorun í minn feril og maður er nú ekkert að yngjast þannig að ef ég myndi ekki gera þetta núna þá held ég að ég myndi aldrei gera þetta. Þannig að mér fannst þetta vera rétti tíminn. Og svo er Breiðablik búið að vera mígandi utan um mig í mörg ár þannig að ég vissi að áhuginn var mikill og það hjálpaði ferlinu alveg klárlega sko,“ segir Ívar Örn í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi. En var erfitt fyrir leikmanninn að yfirgefa uppeldisfélag sitt? „Það er rosalega erfitt fyrir mig. Ég er mjög heimakær og fer ekkert leynt með það. Mér þykir ótrúlega vænt um KA og ég vil meina að ég hafi skilið við alla í góðu. Akureyri er ekki að fara neitt, þó svo að ég fari.“ Hann segist hafa viljað fara í stórt félag á þessum tímapunkti á ferlinum. „Ég vil samt ekkert taka af KA samt sko. KA er líka alveg ágætlega stór klúbbur, en þetta er allt öðruvísi unit. Bara núna að labba inn og kynnast öllu staffinu og allt sem er í kringum þetta. Þetta er svolítið stærra batterí. Ég geri mér fulla grein fyrir því og það er klárlega það sem ég vildi. Mig langaði að vera alveg við toppinn og hingað er ég kominn og ég held að það sé klárt markmið að fara að berjast um toppinn sko.“ Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni.
Besta deild karla KA Breiðablik Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Fleiri fréttir Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Sjá meira