Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. febrúar 2026 06:45 Hjörtur segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Tromsö sýna svart á hvítu að Íslendingar hafi sofnað á verðinum. Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda.
Það vakti mikla athygli þegar Icelandair tilkynnti í síðustu viku að félagið muni fljúga til Trömsö borgar nyrst í Noregi frá og með 23. október 2026. Umræða spratt upp á samfélagsmiðlum um hvað hafi valdið þessu, varla áhugi Íslendinga? Hjörtur Atli Guðmundsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi sem starfað hefur í ferðaþjónustunni í fjölda ára, veltir málinu fyrir sér á Substack-síðu sinni. Greinin ber heitið „Að sofna á verðinum.“ Ekki hagsmunir íslenskrar ferðaþjónustu „Það sem mér finnst áhugaverðast í þessu er að við erum að horfa upp á Icelandair taka ákvörðun sem er í raun og veru ekki að vinna að hagsmunum íslenskrar ferðaþjónustu,“ segir Hjörtur Atli í samtali við Vísi. Hann tekur fram að það sé í engu við Icelandair að sakast, líkt og fram kemur í grein hans, þar sem hann skrifar meðal annars: „Dramatískari menn en ég myndu velta fyrir sér ósmekklegum samlíkingum um rýtingu í bak þjóðar. En ekki ég. Icelandair er auðvitað fyrst og fremst bara að reyna að reka arðbært flugfélag, eitthvað sem hefur óneitanlega gengið mjög brösulega undanfarin ár. Flug til Tromsö með Ísland sem viðkomustað er bara algerlega frábær hugmynd, fyrir Icelandair. Norðmenn sváfu nefnilega ekki á verðinum, og fyrir vikið er mikil eftirspurn eftir ferðum þangað. Þetta eru samt umfram allt frekar vondar fréttir fyrir ferðaþjónustuna hér.“ Hjörtur segir nokkuð ljóst að Tromsö sé ekki sett á dagskrá fyrir Íslendinga nema að sáralitlu leyti. Tromsö-flugið sé nýjasta útspilið í langri harmsögu þar sem sjáist bersýnilega hversu hár kostnaður geti orðið af sinnuleysi og skeytingaleysi. Ferðaþjónusta sé gríðarlega mikil samkeppnisgrein og ferðalangar hafi úr þúsundum áfangastaða að velja, suma sem jafnvel séu á pari við Ísland. „Fyrir vikið er hættulegt að sofna á verðinum þegar vel gengur, því ef við vöndum okkur ekki, þá eru fjölmargir aðrir staðir í boði. Það er ekki lögmál að hér verði alltaf fullt af fólki sem er reiðubúið til að greiða tugi þúsunda í bílastæðagjöld víðs vegar um landið, ofan á þær ótöldu þúsundir sem ferðalagið kostar yfirhöfuð. En… við sváfum á verðinum. Og á sama tíma vaknaði Noregur.“ Hætt hafi verið um hríð að markaðssetja Ísland sem vænlegan áfangastað fyrir ferðamenn á nákvæmlega sama tíma og Noregur hafi sett allt í botn. Hjörtur segir tölur um komu ferðamanna, sérstaklega breskra ferðamanna til Íslands utan háannatíma sýna þetta - þeim ferðamönnum hafi fjölgað í Tromsö. Tromsö efst á lista hjá Getyourguide Í grein sinni víkur Hjörtur einnig að bókunarþjónustunni Getyourguide. Hann segir fyrirtækið algjört skrímsli sem vaxið hafi gríðarlega á nokkrum árum. „Notandi sem fer á Getyourguide, óviss um áfangastað en með hjartað fullt af norðurljósaþrá, fær mjög skýr skilaboð: Farðu til Tromsö. Athugið; það eina sem ég gerði var að skrifa „northern lights“ í leitargluggann. Getyourguide ákvað fyrir mig að Tromsö væri besti áfangastaðurinn fyrir það.“ Skjáskot af leit Hjartar á vef Getyourguide. Hjörtur segir það grafalvarlegt fyrir ferðaþjónustuland í þungu samkeppnisumhverfi að eitt stærsta bókunarfyrirtækið í heimi velji stærsta áfangastaðinn óumbeðinn þegar gestur leitar að norðurljósum. Hann segir vel ígrundaða ákvörðun liggja að baki því að Tromsö sé birt sem fyrsti valkostur, jafn vel ígrunduð ákvörðun og hjá Icelandair að hefja þangað flug. Áhuginn leiti þangað í dag. „Áhuginn leitar þangað í dag. Alls kyns merkjasendingar eiga sér stað sem benda til þess að Tromsö sé áhugaverðari áfangastaður en Ísland. Kannski ekki alfarið að öllu leyti, en alveg bersýnilega að þessu tiltekna leyti. Það vill bara svo til að þetta tiltekna leyti er mjög veigamikið fyrir íslenska ferðaþjónustu utan háannatíma.“ Verði að bregðast við með raunverulegum mælingum Hjörtur segir alveg ljóst að bregðast þurfi við. Hér þurfi að gera miklu, miklu betur þegar komi að kynningu og markaðssetningu á Íslandi. Hann segir Ísland brjálæðislega gott ferðaþjónustuland sem svo til allir yfirgefi með risastórt bros á vör, uppnumin af fegurð landsins, gestrisni heimamanna og þroskuðu framboði afþreyingar og ferða. „Hagaðilar í ferðaþjónustu þurfa í sameiningu að fjárfesta raunverulega í markaðsstarfi. Ekki stöku auglýsingaherferðum og boðsferðum fyrir bloggara, heldur langtímaverkefnum með raunverulegum mælingum,“ skrifar Hjörtur. „Við þurfum að vita hver núverandi sýnileiki Íslands sem áfangastaðar er. Við þurfum að skilja af hverju einn stærsti ferðasöluaðili í heiminum velur að ýta sínum gestum til Noregs og við þurfum að velja hverju við viljum breyta, hvað við viljum mæla og að endingu, hvernig við viljum að ferðaþjónustan á Íslandi líti út. Nótabene, þá er svarið ekki „við viljum betur borgandi ferðamenn.“ Hjörtur segir í samtali við Vísi augljóst að ferðamannaiðnaðurinn sé ein mikilvægasta tekjulind Íslendinga. Hann segist ekki endilega nenna að ræða pólitíska sviðið en segir: „Við erum með ríkisstjórn sem hefur engan sérstakan áhuga á ferðaþjónustu, finnst hún ekkert sérstaklega skemmtileg. Og við erum of fljót að fara í umræðuna um ágang og álag á innviði og láglaunastörf og allt þetta, en svo gleymist umræðan um það að þetta er okkar allra mikilvægasta tekjulind.“
Ferðaþjónusta Icelandair Fréttir af flugi Noregur Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Sjá meira